Niðurtalningin heldur áfram .......

2bigstockphoto_Happy_Sun_103457.... það eru bara 4 dagar í brottför ! 

Ekki misskilja þessa mynd því að hún endurspeglar alls ekki hvernig hugarástand mitt er þessa stundina Pouty  Mér fannst myndin bara svo ferlega flott að ég varð að láta hana fljóta með þessu annars innihaldslausa blaðri í mér ....... 118375

Ég er búin að ráða hann Sigtrygg Einar í vinnu heima.  Hann er lengi búinn að vera að lesa fyrir mig frasann sem stendur á mjólkurfernunum um að það eigi að skola fernurnar og skila þeim í næsta fernugám til endurvinnslu. Ég ákvað að nota þennan áhuga hans og bauð honum vinnu við að labba með fernurnar sem til falla á heimilinu í "grenndarstöðina" í hverfinu okkar.  Í dag færði ég mig svolítið upp á skaftið og sendi hann með dagblöðin í blaðagáminn á sama stað Grin 
Sigtryggur fær auðvitað smá laun fyrir þessa vinnu og vonandi tekst smátt og smátt að kenna honum að safna sér fyrir einhverju sem hann langar að eignast. 

Nenni ekki að blogga meir í þetta skipti ......

Þreytt - þreyttari - laaaaaaaaaaang þreyttust Woundering


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sigtryggur erduglegur drengur, sem kemur manni sífellt á óvart.

Annað mál, dugði hótunin hjá þér í gærkvöldi, eða varstu ein hluta næturinnar?

Afi úr sveitinni (IP-tala skráð) 14.10.2007 kl. 10:00

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kristín Katla Árnadóttir, 14.10.2007 kl. 12:51

3 Smámynd: Árný Sesselja

knús á ykkur

Árný Sesselja, 14.10.2007 kl. 14:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband