Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

Komin heim úr sumarfríinu

Jebb nú erum við komin heim úr hálfs mánaðar sumarfríi.  Svona í mjöööög stuttu máli þá fórum við fyrst norður á Blönduós til pabba og mömmu og gistum þar í 2 nætur.  Því næst fórum við á Grenivík og gistum þar í fellihýsinu 1 nótt.  Næst fórum við austur á Vopnafjörð og vorum þar á ættaróðalinu þeirra tengdó í 6 daga og fórum þá til Húsavíkur og svo í Aðaldalinn og gistum þar í fellihýsinu eina nótt.  Nú restina af þessum hálfa mánuði eyddum við svo á Blönduósi hjá pabba og mömmu Smile  Við héldum dagbók alla ferðina og þegar að ég finn tíma og nennu pikka ég hana inn á vefdagbókina hjá krökkunum.  Læt vita hér um leið og ég er búin að pikka .......
Myndavélin var auðvitað með í för og ég er ekki frá því að mér hafi tekist að taka u.þ.b. 450 myndir í ferðinni Grin

Þar til næst hafið það eins gott og þið getið ...... 


Smá update af mér og mínum .....

Nú er sumarfríið okkar Óla hafið og sjaldan verið meira að gera hjá okkur Smile  Er þetta ekki alveg típískt að yfirhlaða sig af allskonar verkefnum í sumarfríinu ?  Það á bókstaflega allt að gerast !  Í þessum skrifuðu orðum er minn heittelskaði ..... sveittur við að flísaleggja á baðherberginu þar sem hann er búinn að rífa gömlu sturtuna og setja nýjan sturtubotn.  Ég reyni auðvitað að fremsta megni að vera honum innan handar við verkefnið Grin 
Í gær fórum við Óli og Halla Katrín upp í Borgarfjörð í sumarbústað sem hún Gunna fyrrv. tengdó var í með strákana okkar.  Gunna fór í bæinn og við Óli tókum við bústaðnum og börnunum og létum fara vel um okkur og komum svo heim í dag.  Við Halla fórum reyndar á undan Óla því hann þurfti að klára að undirbúa fyrir flísalögn áður en hann kæmi sem og hann gerði.  Vinafólk okkar var í þarnæsta bústað sem gerði ferðina bara skemmtilegri Smile

Halla og Kristján

S.l. miðvikudag lögðum við Óli af stað í "brúðkaupsferðina" okkar Smile  Ferðinni var heitið á landsmót bifhjólafólks sem haldið var í Skúlagarði í Kelduhverfi.  (Rétt vestan við Ásbyrgi)  Þar sem ég hef nánast enga reynslu af svona löngum mótorhjólaferðum skiptum við ferðinni norður í tvo hluta og fórum á Blönduós á miðvikudaginn og restina af leiðinni á fimmtudaginn.  Fyrri hluti gekk mjög vel en á fimmtudeginum lentum við í ausandi rigningu á Öxnadalsheiðinni og urðum að leyta skjóls hjá frænku hans Óla á Akureyri til að fara í sturtu, hlýja okkur örlítið og þurrka fötin.  Sálartetrið mitt þurfti líka smá breik því að á leiðinni upp á Öxnadalsheiðina lenti ég í því í fyrsta sinn að detta á mótorhjólinu mínu Frown Sem betur fer meiddi ég mig ekki mikið og hjólið er óskemmt ...... Smá mar á mjöðm og sköflungi já og svo auðvitað meiddið á sálinni Wink  

Af krílunum mínum er allt gott að frétta.  Sá yngsti og sá elsti eru búnir að vera ýmist hjá pabba sínum og/eða ömmu undanfarna daga eða síðan 29. júní.  Sigtryggur var líka hjá þeim í viku en fór svo s.l. föstudag í sumarbúðir í Reykjadal og kemur hann heim á morgun eða allt svo heim til pabba síns og ömmu.  Svo koma þeir allir heim til okkar einhverntíman  um helgina Smile  Þá verður stefnan tekið norður og svo austur Grin  Hálfsmánaðar ferðalag með alla ormana okkar !

Nokkrar nýjar myndir væntanlegar inn í  fjölskyldualbúmið

Meira seinna ..... 


Örblogg .......

Vegna fjölda áskorana og kvartana ...... Smile 
Nú er ég eins og flestir vita orðin gift kona ....... aftur Tounge  Brúðkaupið gekk alveg eins og í sögu, og var alveg yndislegur dagur í alla staði.   Ljósmyndarinn hefur ekki lokið sínu verki þannig að myndasýning verður að bíða betri tíma.
Við Óli fórum af stað í "honnýmún" í dag og er ferðinni heitið á Landsmót bifhjólamanna sem haldið er í Skúlagarði í Kelduhverfi.   Þegar þetta örblogg er ritað erum við stödd á Blönduósi og ætlunin er að fara á hádegi á morgun af stað aftur .....

Meira seinna .........


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband