Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Aftur í skólann

Í gær mættu strákarnir mínir í skólann á ný eftir sumarfrí og það var ekki laust við að það væri smá spenna fyrir því Smile  Meira að segja unglingurinn minn var spenntur en talaði nú samt um að það mætti alveg taka upp þann sið að sleppa alveg allri heimavinnu, hún væri bara algjör óþarfi Grin 

Ég keyrði þeim sjálf í skólann fyrsta daginn en í vetur sér akstursþjónusta fatlaðra um aksturinn eins það hefur verið undanfarin ár.  

Sigtryggur Einar fékk strax inni í frístundinni í Hofinu en Kristján lenti á bið í sinni frístund, Höllinni.   Eins og venjulega er starfsmannaskorti um að kenna.  Það er reyndar líka verið að flytja Höllina (frístundina) í nýtt húsnæði í Egilshöll og þegar það er búið býst ég við að Kristján fái einhverja daga í hverri viku. 

Þegar Kristján kom heim í gær sagði hann mér að það yrði örugglega rosalega gaman í skólanum í vetur því að hann væri að fara að læra stuttmyndagerð með bekknum sínum Grin 
Seinnipartinn s.l. vetur var Kristján farinn að fara nánast alveg einn út í bekk og gekk það bara mjög vel.  Þess vegna var ákveðið að hann færi í fyrstu tvo tímana á hverjum degi einn út í bekk og hann er bara mjög sáttur og glaður með það Smile

  


Fimmtudagur ......

Electronic_Bathroom_ScaleÍ dag (tæknilega séð í gær þar sem það er komið vel fram yfir miðnætti) eru 3 vikur síðan að ég sagði fitupúkanum og sleninu stríð á hendur, já og ég hætti að styrkja WorldClass Smile  Þessar þrjár vikur hef ég mætt samviskusamlega á hverjum degi í ræktina og púlað í rúman klukkutíma.  En til að vera alveg nákvæm þá er þetta með tveimur undantekningum en það eru 2 sunnudagar sem að ég kaus að fara frekar í langan göngutúr úti í stað þess að fara í Laugar.  Ég fer nefnilega alltaf í WorldClass í Spönginni og í sumar er lokað þar á sunnudögum.  S.s. hreyfing á hverjum degi Smile  Þetta hefur svo sannarlega borið árangur allt þetta sprikl því að í morgun (gærdag þegar ég vaknaði) sýndi vigtin í fyrsta sinn í marga mánuði tölu sem að byrjaði á 8 Smile  Á vigtinni stóð 88,1 en það þýðir að ég er búin að léttast um 7 kíló á þessum 3 vikum Grin  Þessi tala þýðir líka að nú er BMI stuðullinn (líkamsþyngdarstuðullinn)  hjá mér kominn þrepi neðar eða í "yfir kjörþyngd" en hann er búinn að vera í "of þung" í marga mánuði.  Til að reikna þennan stuðul nota ég reikniforrit sem ég fann á vefnum hjá Lyf og heilsu.  

Ég veit vel að maður léttist mest fyrst og svo hægist aðeins á þessu en ég er engu að síður svakalega ánægð með árangurinn Smile  Nú er bara að halda áfram og detta ekki  í þá gryfju að fara að vera "góð" við sjálfa mig og skrópa í ræktinni og byrja að sukka aftur ........ (og þá meina ég vitanlega að sukka í mat og þess háttar Smile)

Undanfarna daga hef ég verið að vinna frekar mikið en það útskýrir bloggletina hjá mér.  Ég er líka búin að vera 2 auka unglinga hjá mér, þær frænkur mínar Svanhildi og Signýju Björgu, þannig að það er búið að vera fullt að gera og tóm gleði Grin


Skýjum ofar - Félagsliðanámið framundan

Fyrir nokkru síðan fór ég að spá í að taka smá hliðarspor í því sem ég er að læra, þ.e. sjúkraliðann.  Ég ákvað að fara í Félagsliðabrú hjá Mími símenntun. En fyrir þá sem veltast í vafa um hvað Félagsliðabrú er þá er það nám ætlað fólki sem vinnur við umönnun t.d. á öldrunarheimilum, í heimaþjónustu eða við heimahlynningu.  Þetta er fjögurra anna eininganám sem kennt er samkvæmt námsskrá menntamálaráðuneytisins.  Námið er 32 einingar og eru kenndar 8 einingar á hverri önn. 
En til að fá að hefja nám í Félagsliðabrú þarf að uppfylla 3 skilyrði,  vera orðin 22 ára, hafa lokið 230 klst í starfstengdum námskeiðum og hafa 3 ára starfsreynslu í umönnun.  En það síðasta, starfsreynsluna, er ég ekki búin að uppfylla
Frown  1. nóv. n.k. er ég búin að vinna í 2 ár á Hrafnistu og það er bara ekki nóg.  Ég hef hins vegar verið að vinna í því undanfarið að fá þau ár sem að ég var heimavinnandi vegna fötlunar sona minna metin sem vinnu.  Í dag kom svo svar frá menntamálaráðuneytinu um að ég fengi þennan tíma metinn og ég fæ að hefja Félagsliðanámið strax í haust Grin


Hætt að styrkja World Class !

worldclass.logoÉg man ekki hvort að ég hef minnst á það hérna áður en ég hef í alltof langan tíma verið dyggur stuðningsaðili WorldClass.  Ég borga í hverjum mánuði ríflega 4.000 krónur á mánuði fyrir aðgang þar.  En það hefur farið eitthvað lítið fyrir því að ég noti mér þennan aðgang Angry  Svona getur maður nú verið mikill auli Angry  EN frá því um s.l. mánaðarmót er ég hætt að syrkja WorldClass og mæti núna á hverjum degi !  Betra að nota þennan pening sjálf ...... já og kannski tapa einhverjum kílóum þarna inni.  Ekki væri það nú verra .......
Ég fer nánast alltaf í WorldClass í Spönginni en þar er lokað á sunnudögum í sumar þannig að ég hef farið báða sunnudagana í langan göngutúr í staðinn Smile  Nema í gær þá lá eitthvað illa á miðjumanninum mínum honum Sigtryggi þannig að ég bara dreif hann út með mér í göngutúr.  Fannst það alveg prýðileg hugmynd alveg þangað til að við vorum aðeins komin af stað og ég var fari að kalla til hans alveg lafmóð: "Sigtryggur minn ekki hlaupa á undan mömmu !"  Hann staldraði augnablik við og svaraði: "Ég er ekki að hlaupa, ég labba hratt"   Svei mér þá ég held að ég verði að komast í aðeins betra form til að halda í við drenginn Pouty

Nýjar myndir á nýjum stað ......... SMELLIÐ HÉRNA og kíkið á Wink


Allt of þreytt til að blogga ....

transsleepy...... en ég ætla nú samt að hamra smávegis inn ......

Undanfarna daga hefur svo sem ekki mikið á daga mína drifið.  Lífið er kominn í sinn vanagang eftir vel heppnað og skemmtilegt sumarfrí Smile  Ég byrjaði að vinna á þriðjudagskvöld (er s.s. á vakt nr. 3 núna ...... GEYSP), Óli byrjaði í sinni vinnu á þriðjudaginn, strákarnir fóru í frístund og Halla Katrín á leikskólann á þriðjudaginn einnig Smile  Mikið svakalega er nú gott að lífið færist aftur í fastar skorður eftir sumarfrí.  Ekki það að ég sé að vanþakka sumarfríið eða að það hafi verið leiðinlegt, það er alls ekki svo.  Heldur er þetta bara orðið svolítið langt frí fyrir einhverfu gaurana mína sem þrífast á því að hafa allt í föstum skorðum.  Það var eiginlega alveg óborganleg sjón að fylgjast með honum Sigtryggi mínum á mánudagskvöldið.  Hann ljómaði eins og sól í heiði yfir því að vera að fara í frístundina daginn eftir Grin  Greinilega mjög sáttur við að allt væri að færast í sínar föstu skorður.

transHjá mörgum telst það kannski ekki til frétta að fara í bíó en hjá mér telst það sko til frétta !  En á mánudagskvöldið fór ég í bíó með henni Kiddý Smile  Við fórum að sjá Mamma Mía í Smárabíó og men hvað ég skemmti mér konunglega !  Þessi mynd er alveg frábær Smile  Mest langaði mér til að syngja með en ég held að þeir sem sátu í kringum mig hefur kannski ekki höndlað það þannig að ég raulaði bara með í hljóði ........

Læt þetta duga í þetta sinn .....

 


Þetta hlítur að hafa verið grín !

Boðorðin 10 úr heimilisfræðum frá 1954

1 )  Hafðu kvöldmatinn tilbúinn á réttum tíma.  Það veitir honum þá tilfinningu að þú hafir verið að hugsa um hann og að þér sé annt um þarfir hans.   Flestir karlmenn eru svangir þegar þeir koma heim og tilbúinn matur er hluti af því að láta hann finna hversu velkominn hann er heim, en það er karlmönnum nauðsynlegt.


2)  Notaðu 15 mín til að snyrta þig og skipta um föt áður en hann kemur.  Hann er að koma heim úr leiðinlegri og erfiðri vinnu og er þreyttur.  Vertu svolítið hress og skemmtileg til að hressa hann við.

3)  Taktu upp allt rusl og dót.  Farðu eina umferð um húsið og safnaðu saman skólabókum, leikföngum, pappírsrusli og blöðum.  Renndu svo tusku yfir borðin til að þurrka af og þrífa svolítið.  Eiginmanni þínum mun finnast hann kominn í friðarparadís og það hefur mikið að segja fyrir hann. 

4)  Snyrtu börnin til.  Það tekur aðeins nokkrar mínútur að þrífa hendur og andlit og greiða þeim.  Ef þarf, skaltu láta þau skipta um föt.  Þau eru hans fjársjóður og hann vill sjá þau þannig.

5)  Sjáðu til þess að húsið sé hljóðlátt.  Slökktu á öllum vélum, s.s. þvottavél, þurrkara og ryksugu.  Reyndu að sjá til þess að börnin hafi hljótt.  Taktu á móti honum með glöðu brosi.

6)  Gættu þess að hella ekki yfir hann kvörtunum þegar hann kemur.  Ekki heldur kvarta þó hann komi of seint í mat.  Þú getur verið viss um að þínar kvartanir eru minniháttar í samanburði við það sem hann hefur þurft að þola yfir daginn.

7)  Sjáðu til þess að hann hafi það þægilegt.  Láttu hann halla sér aftur á bak í hægindastólnum eða stingdu upp á því að hann halli sér smá stund í rúmið.  Vertu tilbúin með kaldan eða heitan drykk handa honum.  Bjóddu honum að klæða hann úr skónum og hagræddu púðunum undir honum.  Ræddu við hann með rólegri, mjúkri röddu.  Leyfðu honum að slaka á.

8)  Láttu hann ráða kvöldinu.  Ekki kvarta þó hann fari ekki með þig út að borða eða á aðrar skemmtanir, reyndu í stað þess að skilja að hann hefur fengið sinn skerf af streitu og látum yfir daginn og þarfnast hvíldar heima.

10)  Markmiðið er að gera heimilið að stað þar sem eiginmaður þinn getur fundið frið og reglu og getur slakað á eftir erfiðan dag.

Einhverra hluta vegna hefur 9. boðorðið fallið út .......... 

Þetta hlítur bara að hafa verið grín, það getur bara ekki annað verið ! 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband