Bloggfærslur mánaðarins, september 2006

Þetta var nú ljóta vitleysan !

Ekki veit ég nákvæmlega hvað þessi gjörningur átti að fyrirstilla en það veit ég að mér finnst þetta fáránleg framkvæmd.  Það eina sem þetta hafði í för með sér var skelfileg slysahætta. 
Í gærkvöldi var ég stödd í Kópavoginum þegar ljósin voru slökkt og þurfti að keyra þaðan og upp í Grafarvog í myrkrinu.  En sjitt hvað ég var smeik á leiðinni ! Það var eins og 80 % þeirra sem voru úti að aka misstu gersamlega getuna til að keyra !  Fólk var út um allan veg svínandi hver á annan og sumir hægðu VEL á sér og sköpuðu þannig mikla hættu.

Mikið svakalega var ég fegin þegar ég var komin heim til mín í Grafarvoginn á óskemmdum bíl og heil á húfi sjálf ......


mbl.is Götuljós slökkt á höfuðborgarsvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fimmtudagur 28. september .......

.... og bara 20 dagar í brottför til Boston Brosandi  Ég var að koma af "undirbúningsfundi" fyrir ferðina sem fólst aðallega í því að borða kínamat og ostaköku og skipuleggja ferðina auðvitað  Glottandi   Við erum orðnar 6 sem förum og ég er sú eina sem ekki hefur komið áður til USA Brosandi  

Miðvikudagur 27. september

Það eru bara 21 dagur þar til að ég fer til Boston Ullandi  Ég held að ég sé að fara á límingunni af spenningi ! Ég tek reglulegar tarnir á netinu í að skoða, spá og spegulera í því sem ég "þarf" nauðsynlega að kaupa í Boston (Bráðnauðsynlegur óþarfi þ.m.t.) ...... Alltaf missi ég meira og meira andlitið yfir því hvað munar miklu á verði á hinum ýmsu hlutum. 

Í dag fór Kristján Atli í Hólaberg og verður þar þangað til á mánudaginn.  Seinnipartinn í dag fór ég í bíltúr með krakkana og skutlaði töskunni hans Kristjáns til hans og knúsaði hann pínulítið.   Það er ekki laust við að hann Sigtryggur njóti sín alveg í botn þegar Kristján fer í Hólaberg ...... en þá er enginn heima sem böggar hann Brosandi

Sigurjón Stefán kom til mín eftir skóla og var hjá mér þar til að pabbi hans var búinn að vinna en þá skutlaði ég hann heim um leið og ég fór með töskuna hans Kristjáns.  Alltaf jafn yndislegt að fá litla/stóra karlinn hann Sigurjón í heimsókn Brosandi


Stórlaxar og kenjótt kona

Kristján Atli Börnin mín eru sko alveg frábær !  Við kvöldmatarborðið var Kristján Atli að tala um afmæli hjá bekkjarfélaga sínum og hvernig hann kæmist í afmæli.  Þ.e. hver myndi keyra hann.  Ég svarði að annaðhvort ég eða Óli myndum örugglega gera það.  Þá spurði Kristján: "Má ég ekki bara taka leigubíl ?"  Ég leit á hann, brosti og sagði:  "Heldurðu að þú sért einhver stórlax ?"  Kristján svaraði um hæl og sagði brosandi: "Nei, bara smálax"   Ég gjörsamlega missit mig úr hlátri Hlæjandi  Hann er algjör perla hann Kristján Atli Brosandi  Sigtryggi fannst þetta nú heldur kjánalegt og sagði við mig: "Kjáni ertu mamma, hann er ekki lax.  Hann er strákur Brosandi"  Rétt skal sko vera rétt, allavega hjá honum Sigtryggi mínum.

Kenjakonan hún Halla KatrínÍ dag fengum við loksins túttur handa kenjakonunni henni Höllu Katrínu.  Þannig er að þegar hún fékk fyrst pela inni á vökudeild fékk hún einnota túttur sem notaðar eru þar.  Þegar við komum með hana heim og ætluðum henni að fara að nota venjulegar túttur var litla damana sko ekki sammála okkur.   Ó nei ......  Hún vill bara sínar einnota túttur og ekkert múður !  Svo um daginn kláruðust tútturnar og við pöntuðum fleiri en þá kom babb í bátinn .... þessi tegund af túttum er ekki til í landinu og ekki von á þeim því það er einhver bilun í verksmiðjunni úti.  Tútturnar voru jú til en á einnota pelum í setti og þetta gátum við keypt en einungis ef við tækjum 100 stykki í kassa á 12.000 krónur kassin !  Hvaðan skyldi barnið hafa þessa sérvisku ? Hmmm maður spyr sig !

Sigtryggur minn er búinn að vera mjög kvefaður undanfarið en samt verið hitalaus.  Ég hef verið að velta því fyrir mér að hafa hann heima en það tekur hann ekki í mál !  Það er samt svolítil hentistefna hjá honum hvort hann viðurkennir að hann sé veikur eða ekki ..... Hann er t.d. "mjög lasinn" þegar ég bið hann að taka til í herberginu sínu eða eitthvað slíkt en þegar ég segi að hann verði að vera heima því hann sé lasinn þá er hann það sko alls ekki að eigin mati Brosandi


Líf og fjör

Í morgun dreif ég mig í svokallaðan "júlí-mömmuhitting".  Brjálað stuð og börn út um allt Brosandi  Ég set nokkrar myndir þaðan inn á myndaalbúmið hennar Höllu fljótlega ......  Ég og Halla erum svolítið öðruvísi í þessum félagsskap því Halla er jú fædd í apríl Glottandi  Litli þjófstartarinn .....

Ji minn eini ég lenti svo svakalega í'ðí núna í kvöld ! Hissa  Mig langaði allt í einu svooooo mikið í Coca Cola Light að ég dreif mig út í sjoppu BARA til að kaupa mér KÓK !  Ég er svo hissa á sjálfri mér að láta þessa vitleysu eftir sjálfri mér ....... uuuu nú er ég farin að tala eins og klofinn persónuleiki ...... HIN ég, allt henni að kenna ......

Hætt að bulla í þetta sinn


Vegabréfið fundið

Nú líður að því að ég fari til Boston og það er ekki laust við það að ég hlakki svolítið til Glottandi  Um daginn dreif ég mig í að leyta að blessuðu vegabréfinu og í stuttu máli sagt þá sneri ég heimilinu hreinlega við, við að leyta að þessum bévaða pésa Öskrandi  Ég varð að játa mig sigraða fyrir heimilisdraugnum sem ég auðvitað kenndi um að hafa stolið vegabréfinu og fór og sótti um nýtt vegabréf.  Ég sótti um nýtt þann 20. sept og konan sem afgreiddi mig spurði hvort það væri ekki nóg fyrir mig að vera búin að fá þetta í síðasta lagi 4. október.  Það var auðvitað í lagi því ég fer ekki út fyrr en þann 18. október.  Daginn eftir að ég sótti um eða þann 21. sept kom nýja vegabréfið inn um lúguna hjá mér Hissa  Þetta kalla ég snögga þjónustu.
Í dag er svo 24. september og ég var að skipta um herbergi fyrir Kristján Atla og í því brambolti og tilfæringum haldiði að ég finni ekki hitt %#/$#$/%$(%& djö vegabréfið Öskrandi  Þetta á samt að vera betra vegabréf sem ég er komin með núna.  Þ.e. ef mar er að fara til USA.  Þá á þetta víst að vera betra heldur en gömlu sneplarnir.

Eins og fram kom hér að ofan þá vorum við að gera smá breytingar hérna heima.  Við færðum Kristján Atla inn í herbergið við hliðina á baðinu.  Karl-greyið var ekki alveg að höndla að vera í forstofuherberginu.  Það stressaði hann að vita af útidyrahurðinni rétt hjá sér og svo var líka erfitt fyrir hann að vera svona langt frá okkur ..... Vonandi verður þessi breyting til þess að honum líði betur og gangi betur að sofna á kvöldin.


Reykjavík - Mosó - Húsafell - Reykjavík

Þetta er s.s. ferðaröð dagsins í dag.  Við byrjuðum daginn á að skreppa í heimsókn í Mosóborg eins og Sigurjón kýs að kalla staðinn Glottandi  Þar fórum við í morgunkaffi til Öllu og Valla.  Valli var að vísu ekki heima fyrst um sinn.  Við fengum alveg dýrindis kaffi og enn betri pönnukökur.  Ekki amalegt að fá kaffi og pönnsur í morgunmat .... ja kannski ekki alveg það hollasta en það er laugardagur í dag og laugardagar eru jú nammidagar ..... ekki bara hjá börnunum mínum heldur líka hjá mér Brosandi  Sigtryggur og Sigurjón skemmtu sér konunglega við að skoða og leika við kanínur með Signýju frænku.  Sigtryggur fór meira að segja í leiðangur með Signýju að leyta að villtum kanínum.  Þau náðu svo sem engri en sáu víst 2. 
Eftir morgunkaffið í Mosóborg drifum við okkur í bíltúr upp í Húsafell að heimsækja vinafólk okkar í sumarbústað þar.  Komum svo heim rétt um kvöldmatarleytið með allt litla stóðið okkar þreytt og ánægt með daginn Hlæjandi

Föstu dagur og kominn tími á blogg

c_documents_and_settings_notandi_my_documents_photoshoptilraunir_halla_teikning2.jpg

Já nú er ég búin að færa mig einu sinni enn á nýtt bloggsvæði.  Það ætla ég að vona að þetta reynist betur og þá fer ég kannski að nenna að blogga örlítið oftar ......Brosandi 

Það er svo sem ekki mikið að frétta af mér og mínum nema það helst að nú hyllir undir það að strákarnir mínir þeir Kristján Atli og Sigtryggur Einar fái pláss á skóladagheimili Brosandi  Það hlaut að koma að því ..... Það er því miður ekki svo gott að það sama sem uppi á teningnum með Sigurjón Stefán.  Hann verður enn að bíða eftir sínu plássi á Tígrisbæ, en það er skóladagheimilið sem hann fer á þegar það tekst loksins að manna það betur.

Svona til gamans fylgir þessu bloggi ein mynd sem ég var að gera tilraunir með í photoshop.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband