Í leit að vinnu

Já nú er ég farin að leyta mér að vinnu.  Fæðingarorlofinu lýkur hjá mér um næstu mánaðarmót og ég er búin að taka þá ákvörðun að fara út að vinna þegar því lýkur.  Ég er satt að segja búin að fá nóg í bili af því að vera heimavinnandi húsmóðir. 
Ég er mest að spá í að sækja um á öldrunarmiðstöðinni í Grafarvogi.  Það á ágætlega við mig að vinna með gamla fólkinu.  Ég veit að þetta er sennilega ekki best borgaða vinna sem völ er á en það er ekki allt sem skiptir máli.  Hins vegar ef þið vitið um bankastjórastöðu, framkvæmdastjórastöðu eða eitthvað slíkt á lausu, þá endilega látið mig vita
Glottandi

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband