Litli stóri strákurinn minn kominn með blogg

Það er búið að vera draumur hjá Kristjáni Atla síðan í sumar að eignast sitt eigið blogg.  Hann byrjaði fyrst að tala um það þegar við vorum úti í DK og ég lofaði honum að þegar hann væri byrjaður í skólanum mundi ég hjálpa honum að búa til bloggsíðu og núna í kvöld stóð ég við það loforð Grin

Smellið hér og kíkið á síðuna hans Tounge

Endilega skiljið eftir comment hjá honum ef þið kíkið við á síðunni .........

---------------------------------------------------------------------------------------------------

Fyrir rúmlega ári síðan eða nákvæmlega 30. ágúst 2007 bloggaði ég um  agnarsmátt stelpukríli sem vinkona mín eignaðist þennan dag.  Stelpukrílið var ekki nema tæpar 5 merkur þegar að hún fæddist.  Nú er þessi agnarsmáa hnáta orðin stór og miklu meira en það því hún er orðin stóra systir Smile  Núna rétt áðan fékk ég sms þess efnis að Katla Mist hefði eignast lítinn bróður rétt fyrir klukkan 17 í dag Grin  Drengurinn var örlítið stærri en stóra systir var við fæðingu eða 3.900 gr Smile

img_1235
Katla Mist


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Falleg hún Katla Mist!  Til lukku með litla bróðir sem er greinilega stór og flottur strákur.

Getur verið að ég hafi séð son þinn í Rvik þegar handboltastrákarnir voru heiðraðir.

Mér fannst ég sjá drenginn þinn sem er lengst til vinstri í haus!  Gæti samt verið að það hafi verið einhver önnur hátíð í bænum en mig minnir að það hafi verið vegna Olympíuheiðrunar.

www.zordis.com, 1.9.2008 kl. 22:23

2 Smámynd: Ragnheiður

Ó en hún sæt rófa..best að kíkja við hjá stráksa

Ragnheiður , 1.9.2008 kl. 22:32

3 Smámynd: Anna Gísladóttir

Jú, Zordis, laukrétt hjá þér   Drengurinn fór ásamt fleirum úr skammtímavistuninni að kíkja á handboltahetjurnar okkar

Anna Gísladóttir, 1.9.2008 kl. 22:53

4 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

DatingKnús á þig elskulegust og bestu kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 2.9.2008 kl. 21:12

5 Smámynd: Guðmundur Þór Jónsson

Krúttið. Hafið það gott.

Guðmundur Þór Jónsson, 3.9.2008 kl. 00:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband