Í dag er ár síðan ....

að krílið hún Halla Katrín lagði af stað í heiminn sléttum 10 vikum fyrir tímann.  Mér finnst vera svo stutt síðan en samt svo langt .... þetta er svolítið skrítið.  Skrítið hvað maður getur munað vel allskonar smáatriði eins og t.d. ég man hvað ég var að horfa á í sjónvarpinu þegar að ég missti vatnið.  Ég var að horfa á fyrsta þáttinn af "Wanted"  sem sýndur var á skjá einum um tíma Smile
Í dag eru líka 29 ár síðan að Árný systir fæddist Grin   Árný kom til okkar í heimsókn á afmælisdaginn sinn í fyrra.  Eitthvað heilsuleysi (*hóstégheldþaðhafiveriðþynka*) var að hrjá greyið og kvartaði hún yfir því að hafa ekki fengið neina afmælistertu.  Óli brá sér fram í eldhús og kom innan fárra mínútna með "tertu" Smile 

 

1303%20003
 

 

Hér má sjá tertuna góðu sem var gerð úr Hómblest súkkulaðikexi m/súkkulaði ofaná, gerfirjóma (hann er hollari) og vínber til skrauts Smile  Ekkert smá girnileg kaka !
Árný (já og Lena) er stödd í Glasgow en er væntanleg heim á morgun.  Ég heyrði í henni áðan og óskaði henni til hamingju með daginn en geri það engu að síður aftur hér:
 
Elsku Árný ! Innilega til hamingju með afmælið Kissing
Kveðja
~Anna~ 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með dóttluna !!! Knús og kossar !!

Sif (IP-tala skráð) 24.4.2007 kl. 08:11

2 Smámynd: Gerða Kristjáns

Til hamingju með prinsessuna

Gerða Kristjáns, 25.4.2007 kl. 07:27

3 identicon

Til hamingju með stubbuna :)

Hlakka til að sjá ykkur seinna í dag :)

Anna Málfríður (IP-tala skráð) 25.4.2007 kl. 10:01

4 Smámynd: www.zordis.com

Til hamingju .... Geggjuð redding á tertu!  Life is what you make it! 

www.zordis.com, 25.4.2007 kl. 22:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband