Andleysi og þreyta

Ástæðan fyrir bloggleysi undanfarna daga er mikil þreyta bæði andleg og líkamleg.  Ég er búin að vera að vinna mikið og ýmislegt gengið á sem verður ekki tíundað hér ..... allavega ekki í bili.

Ein "gömul" vinkona mín kenndi mér ofsalega fallega vísu í gær.  Hún er svona:

Enginn ratar æfibraut
öllum skuggum fjarri.
En sigurinn er að sjá í þraut
sólskinsbletti stærri.

Mikill sannleikur í þessari stöku ........
Kveðja,
~Anna~ 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Það er enginn stakur sem á góðan vin!  Flott staka sem fær að fljóta með í farteskinu!  Snilldin er að horfa fram á við og sjá ljósið sem ryður sér rúm til okkar!  Hvíldu þig og njóttu Páskanna!  Gleðilega Páska.

www.zordis.com, 8.4.2007 kl. 07:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband