Síðan síðast .....
20.6.2007 | 03:28
hefur ýmislegt gerst hjá undirritaðri. Mannsefnið mitt skilaði sér heim rétt eftir hádegi á 17. júní. Heilsufarið hjá honum blessuðum var alveg ótrúlega gott. Allavega miklu betra en ég átti von á ...... Það varð svo sem ekki mikið úr deginum hjá okkur því Halla litla var orðin lasin þannig að við létum nægja að fara í smá bíltúr og svo í mat til tengdó um kvöldið. Halla er búin að vera með hita síðan eða þangað til í kvöld en þá var hún hitalaus.
Halla Katrín á góðri stund
Á mánudaginn kom unglingurinn minn hann Kristján Atli heim eftir rúmlega 1/2 mánaðar dvöl fyrir norðan ýmist í sveitinni hjá Árnýju systir eða á Blönduósi hjá afa sínum og ömmu.
Elsku Árný, mamma og pabbi og allir hinir, takk fyrir strákinn minn stóra
Núna eru þeir bræður byrjaðir á leikjanámskeiði í Langholtsskóla. Það er ekki laust við að ég finni hvað þeir eru fegnir að byrja í "sumarskólanum", hann hefur verið fastur passi í lífi þeirra svo lengi.
Í dag fór Sigtryggur Einar í Hólaberg og hann kemur heim aftur á fimmtudaginn. Nú fer að líða að því að það loki í Hólabergi, þ.e. árleg sumarlokun en við vorum svo séð að skipuleggja sumarfríið okkar meðan að sú lokun stendur yfir.
Áður en að Kristján Atli kom heim dreif ég mig í að taka herbergið hans rækilega í gegn. Og þá er ég sko að meina RÆKILEGA ! Eitt af því sem sat á efstu hillu í herberginu hans var gamli bangsinn minn hann Snúður karlinn, orðinn vel rykugur og slitinn. Þegar ég tók hann niður og ætlaði með hann út að dusta af honum rykið sá ég að það hefði í raun engan tilgang, hann mundi örugglega detta í sundur við það. Þarna voru örlög hans ráðin .... Ég fór með hann inn í stofusófa og tók af honum myndir og svo fór hann með öðru dóti út í bíl og þaðan í sorpu
Rosalega er erfitt að láta svona dót fara. Þessi bangsi er búinn að vara stór hluti að lífi mínu í svo langan tíma. Ég fékk Snúð þegar pabbi og mamma ákváðu að nú skildi ég hætta að skríða uppí til þeirra á nóttunni. Áætlun þeirra tókst og ég steinhætti að fara inn til þeirra á nóttunni.
Núna eru bara 10 dagar og 13 klst þangað til að stóra stundin rennur upp ! Ég verð að viðurkenna að ég er orðin þokkalega spennt og svolítið stressuð Ég var alveg viss um að ég væri sko búin að græja allt og undirbúa en þegar betur var að gáð þá voru ýmsir litlir og laflausir endar eftir ....... en ekkert sem næst ekki að græja í tæka tíð !
Þar til næst ..... Hafið það eins gott og þið mögulega getið !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Numinn á brott !
16.6.2007 | 21:43
Já tilvonandi eiginmaður minn var numinn á brott í dag af mjög vafasömum mönnum Nei ..... smá grín ..... þeir voru ekki svo vafasamir Þarna voru á ferðinni félagar hans sem komu að sækja hann í þeim tilgangi að steggja greyið hann Óla minn Ég hef nokkuð áreiðanlegar heimildir fyrir því hvert átti að fara með hann og gera við hann og satt að segja er það allt mjög saklaust. Allavega í samanburði við það sem ég varð vitni að í dag. Ég fór niður í Rimaapótek í dag og á planinu þar kom hópur af mönnum út úr bíl. Einn af þessum mönnum var mjög svo undarlegur til fara og greinilega alls ekki edrú. Strákgreyið var í kvennærfatnaði með sokkaböndum og alles í næfurþunnum undirkjól Félagar hans voru sennilega ekki edrú heldur og voru þeir að láta greyið fara inn í verslanir í þessari múnderingu
Félagar hans Óla fóru með hann í river rafting og svo í sumarbústað þar sem átti að grilla og fá sér obbolítið í eina tánna. Ég fékk hátíðlegt loforð um að þeir mundu skila honum, ja eða restinni af honum heim ekki seinna en á hádegi á morgun
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Það eru bara .....
14.6.2007 | 04:58
16 sólarhringar, 11 klukkustundir og 10 mínútur þangað til að stóra stundin rennur upp
eða 395 klukkustundir og 10 mínútur ..........
já eða 23.710 mínútur !
Svei mér þá þetta er að bresta á !!!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Það er víst bannað að ljúga ...
2.6.2007 | 05:01
Bloggar | Breytt s.d. kl. 05:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Stóð upp í fyrsta sinn
1.6.2007 | 15:26
Hún Halla Katrín stóð upp í fyrsta sinn alveg sjálf í gær Ég var svo stálheppin að myndavélin var innan seilingar þannig að ég náði mynd af litlu hetjunni:
Hún stóð ekki lengi en þegar hún reyndi aftur skömmu seinna var ég tilbúin með myndavélina á upptöku og náði smá myndbandbroti af því
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Að rifna úr stolti !
30.5.2007 | 23:42
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Smá grín og grillveisla í Hólabergi
29.5.2007 | 22:39
Fórum í dag í árlega grillveislu í Hólabergi. Alveg frábærlega vel heppnuð veisla þar sem börnin voru auðvitað í fyrirrúmi og veitingarnar voru pylsur og gos Veðrið alveg frábært og allir voða glaðir. Sigtryggur kaus að fara í hesthúsið með Ragnhildi og koma seint í veisluna. Þessi forgangsröðun kom ekki neinum á óvart sem þekkir Sigtrygg vel ......
Svo er það grínið ..... Fékk þetta sent í e-mail frá vinkonu minni í dag, alger snilld
Íslendingar eru svoooo svalir !
+15°C / 59°F
This is as warm as it gets in Iceland, so we'll start here.
People in Spain wear winter-coats and gloves.
The Icelanders are out in the sun, getting a tan.
+10°C / 50°F
The French are trying in vain to start their central heating.
The Icelanders plant flowers in their gardens.
+5°C / 41°F
Italian cars won't start.
The Icelanders are cruising in Saab cabriolets.
0°C / 32°F
Distilled water freezes.
The water in Hvita river gets a little thicker.
-5°C / 23°F
People in California almost freeze to death.
The Icelanders have their final barbecue before winter.
-10°C / 14°F
The Brits start the heat in their houses.
The Icelanders start using long sleeves.
-20°C / -4°F
The Aussies flee from Mallorca.
The Icelanders end their Midsummer celebrations. Autumn is here.
-30°C / -22°F
People in Greece die from the cold and disappear from the face of the earth.
The Icelanders start drying their laundry indoors.
-40°C / -40°F
Paris start cracking in the cold.
The Icelanders stand in line at the hotdog stands.
-50°C / -58°F
Polar bears start evacuating the North Pole.
The Icelanders navy postpones their winter survival training awaiting real winter weather.
-60°C / -76°F
Myvatn freezes.
The Icelanders rent a movie and stay indoors.
-70°C / -94°F
Santa moves south.
The Icelanders get frustrated since they can't store their Brennavinn outdoors.
The Icelanders navy goes out on winter survival training.
-183°C / -297.4°F
Microbes in food don't survive.
The Icelandic cows complain that the farmers' hands are cold.
-273°C / -459.4°F
ALL atom-based movement halts.
The Icelanders start saying "it's cold outside today."
-300°C / -508°F
Hell freezes over,
Iceland wins the Eurovision Song Contest.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vegna fjölda áskorana .....
28.5.2007 | 23:00
ja allavega tveggja, þá hef ég ákveðið að setja inn smá fréttir héðan úr uppsveitum Reykjavíkur Af mér og mínum eru að mestu leyti bestu fréttir. Allir við hestaheilsu eins og er og verða vonandi eitthvað áfram ......
Nú er blessaður skólinn að verða búinn hjá drengjunum og boj hvað allavega sá elsti er farinn að hlakka til Hann er komin með skólaleiða á mjög háu stigi ! Ekki lagaðist sá leiði þegar Sigtryggur Einar fékk að fara norður á Blönduós með ömmu sinni á föstudaginn og sleppa þar af leiðandi við 2 heila daga í skólanum ! Þetta fannst Kristjáni mikið ranglæti ...... Stefnan er að Sigtryggur komi suður með ömmu sinni á morgun en miðað við síðustu fréttir eru þau mamma og hann ekki alveg sammála um hvort það sé svo mikilvægt að fara suður ...... Drengurinn er víst ekki á því að það sé svo nauðsynlegt.
Af minnsta stráknum mínum honum Sigurjóni er líka allt gott að frétta. Hann fékk að koma til okkar Óla í gær í smá aukaheimsókn. Við Óli skiluðum honum svo heim um klukkan fjögur í dag. Drengurinn búinn að vera mikið úti að leika sér í allan dag og farinn að kynnast krökkunum hérna í kring og alsæll. Rétt eftir kvöldmatinn var hringt í mig og ég beðin að taka símann af honum Sigurjóni því hann hafði verið að ónáða viðkomandi mörgum sinnum (hún hélt ca 20 símtöl og slatti af sms) ég þurfti ekki að klóra mér lengi í hausnum til að fatta að litli símasjúklingurinn minn hafði náð að stela símanum af stóra bróður sínum og farið með hann heim. Ég hringdi auðvitað í gemlinginn og innti hann eftir því hvort hann væri með símann og hann viðurkenndi það að lokum en að undangengnu því að játa líka fyrir mér að hann hefði verið týndur og pabbi hans hafði þurft að leyta að honum og fundið hann að lokum uppi á þaki á einhverju húsi í nágrenninu. Það þarf varla að taka það fram að pabbi hans var ekki hress með þessi uppátæki hjá drengnum. Refsingin verður að hann fær ekki að hafa sinn síma (sem er b.t.w. dótasími) í óákveðinn tíma. Þetta er alveg ferlegt hvað drengurinn er símasjúkur ! Hér fyrir neðan er mynd af Sigurjóni að máta hjólið mitt
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þema dagsins er "skápatiltekt" !
7.5.2007 | 21:33
Þegar liðið mitt bæði stórt og smátt var farið í vinnu og skóla í morgun ákvað ég að sleppa endurnæringarviðbótarlúrnum sem ég tek stundum á morgnana og hella mér í tiltekt á heimilinu ! (Veitti sko ekki af!) Efst á forgangslistanum urðu fataskáparnir og þá fremstur í þeirri röð forstofuskápurinn. Þar var ástandið orðið svo slæmt að maður varð eiginlega að troða inn í'ann og skella á eftir því og fá svo allt draslið í feisið næst þegar var opnað. Þessi mikla skápatiltekt endaði með sorpuferð með tvo stóra poka fulla af fötum sem fóru í Rauða kross gám. Skelfing er það skrítið hvað það er erfitt að henda jafnóðum ..... alltaf heitir maður því að henda jafnóðum en gerir svo alltaf sömu vitleysuna ..... safna drasli þar til allt er komið í óefni og taka þá trylling ! *dæs*
Þegar skápatiltektartryllingurinn var búinn tók ég mér til og smellti mér í lit og plokkun og svei mér þá ég er hætt að líta út eins og ég sé búin að vera með flensuna í mánuð eða meira Ég er actually komin með andlit .... eða eins og frænka mín orðaði það svo smekklega þá er þetta víst að fara í framköllun
Over and out ....
~Anna~ komin með andlit aftur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Vrúmmmmmmmmm
6.5.2007 | 23:00
Ví hí ...... Ég fór LOKSINS út að hjóla í dag á nýja hjólinu Hrikalega gaman !
Allt í góðum gír nema blogggleðin hjá mér er í algeru lágmarki .....
Þar til næst hafið það eins gott og þið mögulega getið !
~Anna~
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)