Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Bleikt er fyrir stelpur og blátt fyrir stráka !

Heima hjá mér er einn harðasti andstæðingur Kolbrúnar í þessum efnum en það er hann Sigtryggur minn.  Hann er sko alveg harður á því að bleikt er ekki fyrir stráka, það er sko STELPULITUR !
Klukkan rúmlega fimm í dag var hringt í mig frá frístundaklúbbnum sem Sigtryggur er í og mér sagt að það væri ekki búið að sækja hann.  Ég rauk í það að hringja í ferðaþjónustu fatlaðra og skammast í þeim fyrir að gleyma að sækja krakkann og keyra hann í skammtímavistun ....... Eftir smá stund og 2 símtöl var leigubíllinn sem átti að vera búinn að sækja hann kominn á staðinn að keyra hann í Hólaberg.  Hálftíma eftir þessa uppákomu hringdi ég í Hólaberg bara svona til að tékka hvort strákurinn hafi ekki skilað sér og hvernig ástandið á honum væri, vitandi það að svona seinkun fer svolítið í "einhverfu" taugarnar hans.  Þegar starfsmaður Hólabergs svaraði í símann heyrði ég um leið í mínum manni og var greinilegt á þeim hljóðum að hann var sko ekki sáttur  við lífið og tilveruna ....... Ég var viss um að ástæðan væri sú að hann hafði verið sóttur of seint en annað kom á daginn.  Hann var vissulega ósáttur við seinkunina en þegar að hann kom í Hólaberg sá hann að honum hafði verið úthlutað "stelpu-herberginu" sem er bleikt á litinn ! Hann var svooooo reiður að hann tók varla eftir því þegar starfsmennirnir voru að reyna að segja honum að hann þyrfti ekki að sofa í þessu bleika herbergi heldur fengi hann að sofa í borðstofunni í gestabeddanum.  Það tókst nú samt á endanum að róa hann niður og sýna honum fram á að hann þyrfti ekki að sofa þarna ......


mbl.is Ekki meira blátt og bleikt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

POLITE REQUEST

POLITE
REQUEST

If you see me acting strange
Behavior not in average range
do not point
do not compare
do not laugh
and do not stare.
But for a moment stop and pause
give time to think
´what is the cause?`
You will not see the world as I
but with compassion you might try
to understand Autism’s frame
that every star is not the same.
We all have light within us shine.
Give me the chance
to show you mine.

Höf. óþekktur 

teddy-web

Það getur vel verið að ég hafi einhverntíman áður birt þetta ljóð hérna á blogginu mínu eins og máltækið segir: Góð vísa er aldrei of oft kveðin. 
Þetta ljóð kemur oft upp í huga mér þegar ég sé að fólk starir á syni mína með spurningarsvip í andlitinu og skilur hvorki upp né niður í hegðun þeirra.......

TAKK til allra þeirra sem leggja sig fram um að skilja Smile


Fréttir frá Gremjustöðum 75 af útskrift og fleiru

diploma3Í gær útskrifaðist ég formlega úr Fagnámskeiði I í umönnun Smile  Fékk þetta fína útskriftarviðurkenningarskjal og svo köku og kaffi með öllu liðinu !  Ekki amalegt það .......  Eftir áramót er svo fyrirhugað að halda framhaldsnámskeið eða Fagnámskeið II í umönnun og það freistar mikið að skella sér í það líka svo maður fái nú smá launahækkun Wink  Hjúkkan sem er búin að kenna okkur mest í vetur samþykkti að kenna líka eftir áramót ef að hún fengi að kenna hópnum sem ég var í aftur ..... Munur að vera svona vinsæl Smile 
Af hinum skólanum sem ég er í er allt í fullum gangi ennþá og senn líður að prófum.  Verkefnaskil eru að mestu búin en smá eftir af gagnvirkum prófum á netinu sem ég þarf að taka.  Þau gilda svo sem ekki mikið til lokaeinkunnar en þau eru samt fín æfing fyrir lokaprófin.  Núna áðan tók ég eitt slíkt próf í náttúrufræði og fékk 9,2.  Þetta var þriðja slíka prófið í NÁT103 og í því fyrsta fékk ég 9,0, 7,4 fyrir næsta og svo núna 9,2 og svei mér þá ef ég er ekki bara nokkuð sátt við það Grin
Ég er mikið búin að vera að taka sjálfa mig í gegn varðandi hugsanagang í náminu.  Ég hef verið að gera þær kröfur til sjálfrar mín að það sé bara ekki boðlegt að fá minna en 8,0 fyrir verkefni og próf en ég held að það sé bara ekki rétt að gera slíkar kröfur.  Núna er ég að reyna að koma því í hausinn á mér að ég geri bara eins vel og ég get og það er fínt er ég bara næ áfanganum !

Dr.toothHeima hjá mér hefur undanfarna daga ríkt mikil gremja og geðvonska hjá litlu dömunni á heimilinu.  Í gær taldi ég mig svo hafa uppgötvað ástæðuna fyrir þessu fremur neikvæða ástandi, en ég fann 2 nýjar tennur hjá þeirri stuttu.  Eina hliðarframtönn í neðri góm og einn barnajaxl.  Svo þegar að ég fór að bursta allar þessar tennur bæði nýkomnar og hinar fann ég 2 barnajaxla í viðbót sem voru farnir að gæjast í gegn Pouty  Ekki skrítið að skapið hafi ekki verið upp á marga fiska .......
Núna er tannburstinn líka einn af betri vinum hennar Höllu Katrínar.  Hún ranghvolfir næstum því augunum þegar maður er að bursta í henni tennurnar ....... henni finnnst það svoooooooooo gott Smile  Ekki skaðar það nú heldur hvað tannkremið er asskoti gott líka ......

Sigtryggur minn er ekki hættur að suða um að eignast lítinn bróðir.  Ég sagði við hann um daginn að við ætluðum ekki að eignast fleiri börn og hann fengi þess vegna ekki einn enn bróðir.  Þá svaraði Sigtryggur að bragði: "Já en Óli pabbi er með ofnæmi fyrir hundum !"  S.s. fyrst hann fær ekki hund vill hann lítinn bróðir í staðinn Smile


:(

901652-Noddy-Car ...... skrapp út að keyra í gær
.......fór að sækja Kristján Atla í Frístundaklúbbinn
....... bakkaði á /#%$#%Y$#%&# ljósastaur við að snúa við

JÁ ÉG VEIT ! ....................

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ljósastaurarnir sjást ekki nógu vel !


Sé rúmið mitt í hyllingum .......

icon_smile_sleepy_jumboÞessa stundina þá er þetta minn stærsti draumur !  Ég er svo ógeðslega syfjuð að það er ekki fyndið ...... Samt svaf ég til rúmlega 14 í gær og lagði mig svo í rúma 2 tíma eftir kvöldmatinn.  Þetta er nú líka fimmta vaktin mín í röð þannig að það er kannski ekki skrítið að ég sé svolítið syfjuð ........  Framundan er svo 6 daga frí í vinnunni en bara þeim mun meira að gera heima.  Það er nefnilega ýmislegt sem fær að sitja á hakanum meðan að ég tek 5 vakta törn.  Svo er alltaf nóg að gera í skólanum.

Hef ekki orku í að blogga .......


Eru jólin ekki alveg að koma ?

istockphoto_447999_santa_clauseJúbb, fyrsta sönnun þess rann upp hjá mér í kvöld en þá fórum við Óli út að borða með stórum hópi vinafólks á jólahlaðborð í Skíðaskálanum í Hveradölum Smile  Alveg frábær matur og skemmtilegt kvöld fyrir utan einn smá galla ..... en það var að vegna veðurs úti fyrir þá var alveg skítakuldi í salnum þar sem við vorum Pouty  Við vorum með þeim fyrstu í salinn og hélt ég að þetta væri nú bara svona til að byrja með en ónei ...... húsið hélt hreinlega ekki vindi þannig að eftir því sem að hvessti úti varð kaldara inni.  Fljótlega eftir að við renndum niður eftirréttinum yfirgáfum við staðinn.  Slatti af liðinu fór austur fyrir fjall í partý, sumir fóru heim til sín í bæinn og ég dreif mig í vinnuna Smile

Á vefflakki mínu áðan rakst ég á eftirfarandi sögu.  Ég las hana fyrir nokkrum árum síðan en mér finnst hún alltaf jafn góð .....

Velkomin til Hollands
eftir  EMILY PEARL KINGSLEY
Ég hef oft verið beðin um að lýsa því hvernig það er að ala upp fatlað barn, til þess að fólk sem hefur ekki notið þessarar sérstæðu reynslu geti skilið og ímyndað sér hvernig tilfinning það er.
Það er eins og...

Þegar þú átt von á barni er það eins og að skipuleggja dásamlegt ferðalag, t.d. til Ítalíu. Þú kaupir fullt af leiðsögubókum og skipuleggur frábærar ferðir. Til Colosseum-safnsins, sjá Davíð Michelangelos og gondólana í Feneyjum. Þú lærir jafnvel nokkrar setningar í ítölsku. Þetta er allt mjög spennandi.
Eftir að hafa beðið spennt í marga mánuði rennur dagurinn loksins upp. Þú pakkar niður og leggur af stað. Eftir nokkurra klukkustunda flug lendir vélin. Flugfreyjan kemur inn og segir: "Velkomin til Hollands."
"Hollands?!?" segir þú. "Hvað meinar þú með Holland? Ég ætlaði að fara til Ítalíu! Ég á að vera á Ítalíu. Alla ævi hefur mig dreymt um að fara til Ítalíu."
En það hefur orðið breyting á flugáætlun. Flugvélin er lent í Hollandi og þar verður þú að vera.
Mestu máli skiptir þó að þeir hafa ekki flogið með þig á hræðilegan, viðbjóðslegan, skítugan stað fullan af meindýrum, hungri og sjúkdómum. Þú ert bara annars staðar en þú ætlaðir þér í upphafi.
Þú verður því að fara út og kaupa nýjar leiðsögubækur og læra nýtt tungumál. Þú kemur til með að hitta hóp af fólki sem þú hefðir annars aldrei hitt.
En þetta er bara annar staður. Allt gerist miklu hægar en á Ítalíu og hér er ekki eins töfrandi og á Ítalíu. Þegar þú hefur náð andanum, staldrað við um stund og litið í kringum þig, ferðu að taka eftir því að í Hollandi eru vindmyllur... og í Hollandi eru túlípanar. Holland getur jafnvel státað af Rembrandt.
Allir sem þú þekkir eru uppteknir við að koma og fara frá Ítalíu... og þeir eru allir að monta sig af því hversu góðar stundir þeir áttu þar. Alla ævi átt þú eftir að segja: "Já, það var þangað sem ég ætlaði að fara, það var þangað sem ég var búin að ákveða að fara."
Sársaukinn mun aldrei, aldrei hverfa, því missir draumsins sem ekki rættist er mikill.
En... ef þú eyðir allri ævinni í að syrgja að þú fórst ekki til Ítalíu nærð þú aldrei að njóta þeirra sérstöku, yndislegu hluta, sem Holland hefur upp á að bjóða.

Íslensk þýðing: Indriði Björnsson


KALORÍUREGLUR FYRIR JÓLIN

Fékk þessar snilldar reglur í e-mail í dag .......

food_titleMaturinn sem þú borðar þegar enginn sér til hefur engar kaloríur.
Þegar þú borðar með öðrum eru einungis kaloríur í matnum sem þú borðar umfram þau.
Matur sem er neytt af læknisfræðilegum ástæðum (t.d. jólaglögg, heitt súkkulaði, rauðvín o.s.frv.) inniheldur aldrei kaloríur.
Því meira sem þú fitar þá sem þú umgengst daglega því grennri sýnist þú.
Matur (t.d. poppkorn, kartöfluflögur,hnetur, gos, súkkulaði og brjóstsykur) sem er borðaður í kvikmyndahúsi eða þegar horft er á myndband er  kaloríulaus vegna þess að hann er hluti af skemmtuninni.
Kökusneiðar og smákökur innihalda ekki kaloríur þar sem þær molna úr þegar bitið er í þær.
Allt sem er sleikt af sleikjum, sleifum, og innan úr skálum eða sem ratar upp í þig á meðan þú eldar matinn inniheldur ekki kaloríur vegna þess að þetta er liður í matseldinni.
Matur sem hefur samskonar lit hefur sama kaloríufjölda (t.d. tómatar = jarðaberjasulta,  næpur = hvítt súkkulaði)
Matur sem er frosinn inniheldur ekki kaloríur því kaloríur eru hitaeiningar.

HENGIST Á ÍSSKÁPINN !  og gleðileg jól Tounge

15. nóvember

Enn á ný nota ég vinnutímann til að blogga.  Þetta er svo ósköp þægilegt að blogga svolítið þegar rólegt er að gera og ég nenni ekki að læra eða tek mér pásu frá lærdómnum.   img_tt-school-11Af náminu er það að frétta að núna nýlega fékk ég niðurstöðu úr þriðja skilaverkefninu í sálfræði og ég fékk 9,2 fyrir það.  Nú á ég bara eftir að fá einkunn fyrir síðasta skilaverkefnið í sálfræði en það var rannsóknarskýrla sem ég gerði eftir að hafa rannsakað eigið skammtímaminni.  Ég bíst við því að fá þá einkunn eftir ca. 1 viku eða svo.  Ég er samt svolítð hrædd um að einkun fyrir skýrsluna verði ekki jafn góð og fyrir síðasta verkefni því þetta er frumraun mín í svona skýrslugerð.  Ég held að ég verði bara voða glöð ef að ég fæ yfir 6,0.  Í heilbrigðisfræði er ég búin að skila 2 verkefnum en kennarinn er bara búin að skila einni einkunn og það er fyrir seinna verkefnið sem að ég skilaði.  Svolítið skrítið að hún skuli ekki fara fyrst yfir fyrsta skilaverkefnið ...... en allavega þá fékk ég 9,0 fyrir seinna verkefnið og  er ég bara voða sátt við það.   Námskeiðið sem ég er búin að vera á í umönnun aldraðra er alveg að verða búið.  Bara morgundagurinn og svo þrjú skipti í næstu viku eftir.  Svo er bara að reyna að taka Fagnámskeið II í umönnun eftir áramót til að fá þriggja launaflokka hækkunina sem maður fær þegar þessum 2 námskeiðum er lokið.  Ef ég tek ekki seinna námskeiðið eftir áramót verð ég að bíða með það í 1 ár og ég er ekki til í það.  Best að ljúka þessu bara af. 

IMG_0742Á mánudaginn fór ég til tannlæknis og lúllaði aðeins þar meðan að tannsi kláraði að loka tönn sem hann hefur verið að dunda sér við að rótfylla.  Þegar ég var búin hjá tannsa skrapp ég í heimsókn til Brynhildar vinkonu minnar og fékk loksins að sjá litlu dóttur hennar með eigin augum.  Ég er búin að sjá fullt af myndum af henni en fékk loksins núna að hitta litlu hetjuna.  Þessi litla dúlla er sko sannkölluð hetja þvi hún á í raun ekki að vera fædd ennþá því að hún átti að fæðast 17. nóvember en fæddist 29. ágúst.  Þann 1. desember verður stúlkan skírð og mamma hennar bað mig um að sjá um að mynda athöfnina og það var sko auðsótt mál.  Enda er ég komin með nýja myndavél og 2 nýjar linsur og rosa spennt að prófa nýju græjuna í svona töku. Hérna fyrir ofan má svo sjá mynd sem að Brynhildur tók af okkur, mér og litlu hetjunni.  Kannsi rangnefni að segja "litlu" því að sú stutta er orðin rúmlega 3.800 grömm. Hér er svo mynd af hetjunni: 

img_0653 

 


Snillingurinn minn hann Kristján Atli

"Mamma, veistu það varð slys í skólanum í dag" sagði Kristján Atli við mig þegar að hann kom heim úr skólanum í gær.
"Nú, hvað kom fyrir" svaraði ég.
"Strákur í bekknum hans Sigtryggs var að renna sér á stigahandriði og datt í stiganum !"  sagði Kristján mjög ákafur.
"Meiddi hann sig mikið ?" spurði ég.
"Já, það kom sjúkrabíll og allt.  Meira að segja 2 sjúkrabílar ! Hann rotaðist samt ekki, því hann hreyfði sig og þeir sem rotast geta ekki hreyfti sig" sagði Kristján og dró síður en svo úr dramanum í þessu öllu saman.
"Þarna sérðu Kristján minn að það er stórhættulegt að renna sér á stigahandriðum" sagði ég og hélt að þar með væri þetta útrætt. En það var nú aldeilis ekki svoleiðis.
"Ég vona að hann hljóti ekki sömu örlög og Jónas Hallgrímsson !" sagði Kristján minn mjög áhyggjufullur.  Þarna mátti ég vanda mig mikið að halda andlitinu og fara ekki að skellihlæja Grin
"Hvað meinaru Kristján minn ?" spurði ég og þóttist ekkert skilja.
"Nú, Jónas datt fullur í stiga og hann dó af því að það kom ekki sjúkrabíll !" útskýrði Kristján fyrir mér fullur þolinmæði .....

Þetta endaði með því að ég leiðrétti þennan misskilning hjá drengnum og sagði honum að Jónas hefði nú ekki dáið af því að það kom ekki sjúkrabíll heldur lést hann vegna blóðeytrunar sem hann fékk í kjölfar fótbrots.  Jónas hafði vissulega dottið niður stiga og verið fullur, þar hafði hann rétt fyrir sér. 


Nú er ég orðlaus !

sesHann Sigtryggur minn á það til að gera mig alveg kjaftstopp.  Um daginn hafði hann mörg orð um það að hann vildi ekki fleiri systkini, sagði reyndar í sífellu: "ekki fleiri börn".  Hann meira að segja sagði afa sínum þetta í kirkjunni þegar að við Óli vorum að gifta okkur.  En nú er nú aldeilis komið annað hljóð í strokkinn !  Núna í kvöld þegar að ég var að baða systur hans kom hann til mín og sagði við mig eitthvað á þessa leið: "veistu mig dreymdi í nótt". 
"Hvað dreymdi þig vinur ?" svaraði ég.
"fleiri bræður" sagði Sigtryggur og brosti. 
Ég hélt ég hefði verið að heyra vitlaust og sagði við hann: "þú átt 2 bræður Sigtryggur minn"
"Ég vil 3 bræður" svaraði hann að bragði.
Á þessu augnabliki var ég orðin alveg kjaftstopp !  Hann var að biðja um fleiri systkini.  En hann var ekki hættur, eftir smá stund kom hann til mín og sagði: "Hann á að heita Elías Weywadt Ólafsson,  WeyWadt svona eins og Halla Katrín".  Ef ég bara vissi hvaðan hann hefur þessa hugdettu, ég mundi gefa mikið fyrir að vita hvaðan þetta kemur .......

Eins og margir vita átti ég afmæli s.l. laugardag.  Ef allar upplýsingar eru réttar varð ég 34 ára þennan dag Smile  Kærar þakkir til allra sem sendu mér kveðju á afmælisdaginn Grin


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband