6 ár síðan .....
25.1.2009 | 00:16
...... að tryggðartröllinu mínu var treyst fyrir mér og hann situr uppi með mig síðan ........
Ég á besta mann í heimi og elska hann alveg ofsalega mikið !
Já og í dag (tæknilegaséðsamtígær) á hún elsku frænka mín hún Sif 36 ára afmæli En það var einmitt hún sem bað tryggðartröllið mitt um að passa upp á mig fyrir 6 árum ......
Elsku Sif ! Til hamingju með afmælið þitt !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mamma, ég er á höndunum !
20.1.2009 | 21:07
Á leiðinni út úr leikskólanum í dag sagði Halla litla við mig: "mamma, ég er á höndunum !"
Ég leit við og sagði: "nei nei Halla mín, þú stendur á fótunum"
"Nei, mamma ég er á höndunum !" svaraði sú stutta frekar pirruð
Ég horfði á hana og var farin að átta mig á að ég var eitthvað að misskilja barnið .......
"Halla mín, þú stendur á fótunum" sagði ég svo með ákaflega mikilli þolinmæði í röddinni með dass af efa um að svarið félli í kramið.
"Mamma, ég er á höndunum alveg eins og þú !" sagði sú stutta og tók í hendina á mér.
Þá fattaði ég að hún var að meina að hún væri berhent
Segir maður ekki stundum við þessi kríli að þau séu á "tásunum" þegar þau eru berfætt ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Helgin á enda runnin og unglingurinn minn að verða 15 ára !
11.1.2009 | 23:53
Á föstudagskvöldið fengum við hjónin pössun og skelltum okkur í bíó að sjá Sólskinsdrenginn. ÓMG (ó mæ god) hvað ég þarf að sjá hana aftur til að meðtaka betur. Ég er svo heppin að vera búin að lofa henni mömmu minni að fara og sjá myndina með henni þegar hún kemur í bæinn eftir nokkra daga
Fyrir akkúrat 15 árum síðan lá ég flöt á fæðingarbekk á sjúkrahúsinu á Blönduósi við að kreista frumburðinn í heiminn Drengurinn lét mig hafa svolítið fyrir því að koma sér í heiminn og fæddist hann ekki fyrr en klukkan 02:35 um nóttina og á því tæknilega séð afmæli á morgun Um þetta leyti fyrir 15 árum var samt útséð með háralitinn á guttanum þó ekkert annað væri komið í ljós .......
Þessi mynd er svo tekin skömmu eftir klukkan 02:35 þann 12. janúar 1994:
Á myndinni sjást vel afleiðingarnar af því að vita háralitinn svona lengi ...... en það lagaðist á rúmum sólarhring
Elsku Kristján Atli, innilega til hamingju með afmælið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sólskinsdrengurinn frumsýndur á morgun og ég er á leið í bíó !
9.1.2009 | 05:17
Ég er mjööööög spennt að fara í bíó annað kvöld
Bloggar | Breytt s.d. kl. 05:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Djö..... er ég heppin að vera hætt að reykja !
8.1.2009 | 05:45
Í fyrradag stóð ég í langri og leiðinlegri biðröð við þjónustuborð Hagkaups í Skeifunni. Þegar ég kom í röðina voru ca. 7- 8 á undan mér. Ég var ekki búin að bíða lengi og fylgjast með því sem fram fór við afgreiðsluborðið þegar mér varð ljóst að drengstaulinn sem var að afgreiða var alls ekki í akkorðsvinnu. Hann hefur annaðhvort verið alveg húðlatur eða nýr í starfi miðað við hvað hann var lengi að öllu. En þolinmæði er víst dyggð þannig að ég andaði mjög djúpt og hélt áfram að fylgjast með og góna í kringum mig. Ég var orðin "nr. 3 í röðinni" þegar ég heyri þann sem var "nr. 1 í röðinni" fá afgreiðslu og hann var að biðja um 2 salem-pakka, í boxi ef þeir væru til. Afgreiðsludrengstaulinn játaði því og tók upp karton af salem í boxi. Mér fannst hann vera heila eilífð að ná plastinu utan af kartoninu en þegar að það loksins tókst hjá honum rétti hann manninum pakkana 2 og sagði: "1.330 krónur"
Ég er yfirleitt frekar lengi að reikna í huganum en þetta dæmi tók ekki langan tíma 1.330 / 2 gera 665 ! Ekki veit ég hvað heyrðu margir í mér þegar ég missti út úr mér: "sjitt, pakkinn kostar 665 krónur!" Ég fékk eiginlega verk í veskið fyrir mannsins hönd .......
Djöfull er ég heppin að fafa drullast til að hætta að reykja fyrir tæpum 6 árum síðan .........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Nýkomin að norðan og jólin alveg að verða búin
5.1.2009 | 23:48
Bara einn dagur eftir af blessuðum jólum. Ég er eiginlega fegin. Ég er svo skrítin að mér finnst þau vera búin þegar nýársdagur er liðinn. Eftir nýársdag fer jólaskrautið að fara í taugarnar á mér og ég get hreinlega ekki beðið eftir að slíta það niður ! Það verður sko gert á morgun (ef að mér gefst tími til þess þ.e.a.s.) Það er reyndar ansi margt sem að ég ætla mér að gera á morgun og vonandi með góðum vilja og mikilli skipulagni gengur það allt saman upp.
Fyrst og fremst ætla ég að fara í ræktina í fyrramálið og taka duglega á því ! Ekki veitir af eftir sukk og svínarí jólanna. Hef reyndar ekki þyngst nema um rúmt kíló en þau eru örugglega 7 á sálinni og nennunni ...... Ég þarf líka að erinda slatta á morgun, fara í þrettándaveislu til tengdó og einhverntíman verð ég líka að leggja mig smávegis því að annað kvöld þarf ég að fara að vinna ...... Ég hlít að vinna einhverja leið út úr þessu.
Þegar þetta er skrifað þá eru 2 af 3 ungunum mínum nýsofnaðir. Það ætlar að reynast þrautin þyngri að snúa öllu þ.á.m svefntíma, á réttan kjöl eftir jólin. Ég taldi svo sem ekki en ég er viss um að dóttir mín kom 30 ferðir fram úr rúminu sínu núna í kvöld áður en hún loksins sofnaði rétt fyrir klukkan 23 !
Þegar ég var búin í vinnunni að morgni 2. janúar drifum við okkur norður á Blönduós með alla ungana okkar. Komum aftur heim seinnipartinn í dag, þreytt eftir skemmtilega ferð. Við heimsóttum sveitina okkar Steiná og áttum alveg yndislega stund þar. Við heimsóttum Völu systir og co líka og áttum alveg stórskemmtilega stund þar (sem reyndar varð til þess að sunnudagurinn var eiginlega skelfilegur ........ I wonder why ?) Síðast en ekki síst þá heimsóttum við pabba, mömmu og Árný systir en hjá þeim gistum við Elsku pabbi, mamma og Árný, takk kærlega fyrir okkur
Höllurnar tvær í saumahorninu hjá þeirri eldri
Kristján, Halla og Sigurjón í stofunni hjá ömmu og afa
Sigurjón og Sigtryggur að hafa það gott við að horfa á kvöldmynd
Halla Kata að syngja og dansa
Að lokum mynd sem að mamma fann í fórum sínum og gaf mér núna um helgina. Þið megið bara giska hvaða krútt þetta er á myndinni
Bloggar | Breytt 6.1.2009 kl. 00:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bakkastaðaannállinn 2008
1.1.2009 | 06:10
Gleðilegt ár kæru bloggvinir, vinir, ættingjar og aðrir sem að slæpast inn á þessa síðu Hafið öll þökk fyrir innlit, comment og allt hitt á nýliðnu ári.
Síðasta ár var bæði viðburðaríkt og skemmtilegt hjá mér og minni fjölskyldu og ber þar hæst að frumburðurinn var fermdur í mars og svo í júlí fór öll fjölskyldan til Danmerkur í sumarhús.
Stiklað á stóru yfir það herrans ár 2008:
Janúar: Áramótaheitið hjá frúnni var að hefja líkamsrækt taka upp nýja og betri lífshætti. Ég stóð við heitið og keypti mér kort í World Class og byrjaði að æfa. Til að fara nú almennilega af stað fékk ég mér (í félagi við aðra) einkaþjálfara.
Þann 12. janúar varð frumburðurinn minn hann Kristján Atli 14 ára.
Þann 19. janúar fórum við í heimsókn í Skaftholt. En það er sambýli fyrir fatlaða austur í Árnesi.
Febrúar: Febrúarmánuður gekk svo sem frekar tíðindalaust fyrir sig. Flestir í fjölskyldunni fengu smá flensupest sem að tók sem betur fer ekki langan tíma. Við skruppum norður á Blönduós í vetrarfríi strákanna og höfðum það gott þar í nokkra daga. Stærstu fréttir mánaðarins voru nú samt að pabbi seldi sveitina okkar, Efri-Mýrar. Salan fór fram í mánuðnum en afhending var áætluð í vor.
Mars: Stór mánuður þar. Í byrjun marsmánaðar skrapp ég til London ásamt systrum mínum, mömmu, mágkonu og frænku og vinkonum. Páskarnir komu um miðjan mánuðinn og á annan í páskum var svo frumburðurinn minn hann Kristján Atli fermdur. Hann fermdist í Langholtskirkju ásamt nokkrum bekkjarfélögum sínum og stóð hann sig með stakri prýði allan fermingardaginn. Það munaði nú samt litlu að illa færi með ferminguna því að nóttina fyrir stóra daginn veiktist ég og mamma líka. Við fengum báðar alveg heiftarlega í magann en sem betur fer fór þetta allt saman vel. Kristján var himinsæll með daginn og við foreldrarnir að rifna úr stolti af stráknum.Þann 30. mars varð svo grjónið mitt hann Sigurjón Stefán 8 ára.
Apríl: Stærstu viðburðir aprílmánaðar voru án efa brúðkaup þeirra Jökuls og Oddnýjar. Fámennt og alveg yndisleg athöfn með miklu fjöri þann daginn
Þann 25. apríl varð svo stelpuskottið mitt hún Halla Katrín 2 ára
Maí: Skólinn kláraðist hjá mér og endaði það með 7 í næringarfræði og 8,6 í siðfræði.
Júní: Í byrjun júní fórum við vestur á firði og heimsóttum afa og ömmu á Þingeyri. Við leigðum okkur ásamt Völu, Gumma og krökkunum "sumarbústað" sem er gamall sveitabær sem heitir Múli. Alveg stórskemmtileg ferð sem að ég er alveg til í að endurtaka í vor.
Júnímánuður var tími undirbúnings fyrir ferðalagið okkar til Danmerkur. Það er jú að mörgu að hyggja þegar maður skreppur í hálfan mánuð í sumarhús til DK með 6 manna fjölskyldu.
Júlí: Þann 4. júlí lögðum við í'ann til Danaveldis. Í stuttu máli sagt þá var þetta alveg yndisleg ferð sem að við getum þakkað pabba mínum og mömmu mikið fyrir að heppnaðist svona vel því þau fóru með okkur og hjálpuðu okkur allan tímann.
Á meðan við vorum í Danmörku héldum við uppá 2 afmæli en þann 16. júlí varð pabbi minn ...... ári eldri og þann 18. varð hann Sigtryggur minn 12 ára
Ágúst: Skólinn byrjaði á ný og alvaran tók við hjá stærri hluta fjölskyldunnar. Strákarnir í sínum skólum og ég byrjaði í Mími símenntun á Félagsliðabrú.
Í byrjun mánaðarins tók ég ákvörðun (og stóð við'ana) að hætta að vera styrktaraðili World Class og byrja að nota kortið mitt (sem ég fékk mér í janúar muniði .......) Helv... vigtin var farin að sýna 95 +
September: Lífið gekk sinn vanagang .........
Október: Kláraði þetta eina fag sem að ég tók í skólanum þessa önnina. Það var félagsleg virkni og endaði hún með 8,5
Blessuð vigtin sýndi mér loksins tölu sem byrjaði á 7 (79,5 kg)
Nóvember: Þann 10. nóvember varð ég 35 ára og í tilefni þess hélt ég obbolítið teyti þann 9. sem lukkaðist alveg með ágætum
Desember: Blessuð jólin með öllu því sem þeim fylgir .......
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Rúmur sólarhringur eftir af árinu ....
30.12.2008 | 22:09
Þessi næstsíðasti sólarhringur ársins alveg að verða búinn. Ég er búin að eyða honum í algert dekur og leti. Það er alveg nauðsyn að öðru hvoru að lufsast bara með börnunum og liggja í leti.
Stelpurófan mín er búin að vera svolítið lasin undanfarna daga, hóstað mikið og sofið frekar illa. Hóstinn gerði það að verkum að við sáum aumur á greyinu í nótt (hafði ekkert með leti í okkur að gera) og leyfðum henni að koma upp í á milli okkar um klukkan 4 í nótt. Þar svaf sú litla restina af nóttinni og sá til þess að móðir hennar svæfi ekkert of vel. Það er frekar erfitt að sofa þegar skipst er á að slá mann og sparka í mann ...... Einhverra hluta vegna sparkar hún og lemur pabba sinn síður. Sem ég skil reyndar ekki því það er ég viss um að það er miklu betra að sparka í hann ........
Aldrei þessu vant sváfu drengirnir þar til að klukkan var langt gengin í tíu. Þegar þeir voru komnir á ról vakti ég Höllu litlu og þegar hún hafði fengið sér smá morgunmat fór ég með hana í leikskólann. Eftir hádegi fór ég svo í ræktina og á meðan fóru Sigtryggur og Sigurjón í fjöruferð með nýju kíkirana sína á meðan að unglingurinn Kristján var heim og las (já eða spilaði í tölvunni) Þegar ég var búin í ræktinni sóttum við Höllu í leikskólann og keyrðum hana í Heiðarselið til afa og ömmu. Þau voru búin að samþykkja að passa gripinn meðan að við Óli færum í bíó með strákastóðið okkar.
Við fórum að sjá Disney-myndina Bolt eða Bolti eins hún útleggst á okkar ástkæra...... Rétt fyrir jólin fékk ég glaðning frá vinnuveitanda mínum, Hrafnistu. Ég fékk 4 boðsmiða í bíó í Laugarásbíó. Þessi glaðningur kom sér vel í dag, ég þurfti bara að kaupa 1 bíómiða og popp og kók fyrir einn því að boðsmiðunum fylgdi popp og kók
Bolti var sýndur í þrívídd og þetta er í fyrsta skipti sem að ég fer í þrívíddarbíó. Fékk þessi forkunnarfögru gleraugu á nefið sem ég varð reyndar að setja yfir gleraugun mín, samsetning sem dró verulega úr sjarmanum á fínu þrívíddargleraugunum
Letilífið í dag endaði svo á því að við fórum með allan herinn okkar út að borða á Rizzo pizza.
Á leið okkar heim eftir pizzu átið komum við við í B&L til að kaupa svolítið af flugeldum fyrir áramótin. Strákarnir verða hjá pabba sínum um áramótin og fá þeir að fara með megnið af skoteldunum þangað til að skjóta upp. Nú er maður búin að gera smá góðverk og stutt Landsbjörgu um 14.ooo krónur
Skoðum mín á flugeldum hefur ekkert breyst .... þeir eru ágætir í sjónvarpinu því þar get ég lækkað í hávaðanum frá þeim og finn ekki helv.... lyktina af þeim
Bloggar | Breytt 31.12.2008 kl. 15:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Jólin jólin út um allt
26.12.2008 | 01:40
Eins og Sif frænka mín benti réttilega á í commenti við síðustu færslu hjá mér þá eru þeir fleiri en tveir sveinkarnir sem komnir eru til byggða. Allir komu þeir til byggða og kíktu allir við í Bakkastöðunum með smávegis í skóinn hjá smáfólkinu á heimilinu. Meira að segja hún Halla Katrín var alveg orðin með þetta á hreinu og núna skilur hún ekkert í því hvers vegna það kemur ekkert meira í skóinn og núna seinnipartinn í dag tilkynnti hún pabba sínum að hún "gleymdi dagatalinu" og það er líka búið Þetta er nú meiri bömmerinn .....
Aðfangadagur leið mjög ljúflega hjá okkur. Ég var að vinna aðfaranótt aðfangadags og fékk því að sofa til rúmlega 11 en þá vakti minn heittelskaði mig og við drifum okkur suður í Keflavík í jólagraut til Jökuls (uppáhalds)bróður og Oddnýjar. Ef mér telst rétt til þá er þetta í þriðja sinn sem að við borðum grautinn saman. Þannig að það er eiginlega orðin svona smá hefð hjá okkur systkinunum hérna fyrir sunnan að snæða jólagrautinn saman í hádeginu á aðfangadag. Það var auðvitað sett mandla í grautinn, meira að segja 2 (við vorum svo mörg) og það voru þeir Kristján Atli og Óli sem fengu möndlurnar. Við vorum varla byrjuð að borða þegar Kristján sýndi mér sýna og sagði: "mamma, hvað er þetta sem ég fann í grautnum ?" Óli fann sína fljótlega eftir það en tókst að fela það þangað til að grauturinn var nánast búinn Kristján fékk 1. verðlaun í möndluleiknum og fékk Astrópíuspilið og Óli fékk 2. verðlaun en það var poki af karamellum sem hann fekk dyggja aðstoð frá smáfólkinu við að borða.
Halla Katrín að bíða eftir jólunum
Á leið okkar heim eftir jólagrautinn í Keflavík komum við við hjá afa og ömmu í Heiðarseli. Fengum smá kaffisopa, sóttum pakka og kysstum þau gömlu gleðileg jól
Næsta stopp var í Laufrimanum hjá ömmu Gunnu og Sævari til að skila Sigurjóni Stefáni af okkur og sækja meiri pakka. Við stoppuðum auðvitað í smá stund og síðan var haldið heim að undirbúa kvöldið.
Aðfangadagskvöld, hamborgarhryggur með öllu ......
Undirbúningurinn fyrir kvöld gekk mjög vel. Óli sá um hrygginn, ég og Sigtryggur gerður nammisalatið og ég sá svo um sósugerðina og svei mér þá ég held ég hafi toppað sjálfa mig í sósugerðinni í þetta skiptið
Þegar að átinu var lokið og allir voru búnir að hjálpast að við að ganga frá eftir matinn breyttist stofan mín í jólapakka vígvöll Krökkunum lá svo á að áður en ég vissi af þá voru þau búin að opna alla sína og ég var ekki einu sinni byrjuð ! Þetta var svo sem alveg ágætt þar sem að ég fékk að opna mína í ró og næði.
Þetta voru mikil bókajól hjá okkur öllum og eiginlega bóka- og fatajól hjá krökkunum. Ég fékk 2 bækur. Eina frá mínum heittelskaða en það var 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp eftir Hallgrím Helgason og svo fékk ég (eða við fengum hana bæði) Sá einhverfi og við hin, eftir Jónu Á Gísladóttur bloggvinkonu mína, frá tengdó. Svo fékk ég líka DVD með Ladda og einnig minningartónleikana um Vilhjálm Vilhjálmsson. Ég fékk mjög sérstaka og yndislegagjöf frá pabba mínum og mömmu sem að mér þykir óendanlega vænt um Frá tengdó fékk ég, já og Óli minn líka, áðurnefnda bók og steikarpönnu. Ég fékk fullt af frábærum pökkum og ennþá fleiri kort og kveðjur sem ég þakka kærlega fyrir.
Sigtryggur Einar með ljósmyndabókina frá afa, ömmu og Árnýju frænku á Blönduósi
Jóladeginum erum við svo búin að eyða heima í rólegheitum utan þess að fara í smá bíltúr um kvöldmatarleytið. Sævar, Gunna og Sigurjón Stefán komu til okkar um miðjan daginn og saman borðuðum við öll hangikjöt með öllu tilheyrandi Þegar kom svo að því að þau færu heim fékk Sigurjón að verða eftir og Sigtryggur fór heim með pabba sínum og ömmu í staðinn.
Að þessum orðum sögðum vil ég óska öllum ættingjum, vinum, bloggvinum og öðrum sem að lesa þetta gleðilegra jóla (restar) og farsældar á nýju ári með þökk fyrir allt á árinu sem nú er að líða
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Meira af jólasveinum og trú á þá sveinana alla
12.12.2008 | 06:15
"Stekkjastaur kom fyrstur, stirðbusalegur karl,
hann fer af stað þrettán dögum fyrir jól, hann reynir að ná
sér í sopa af mjólk sem honum finnst ósköp góð en sú
heimsókn endar þó oftast með ósköpum því kindurnar
verða alveg ærar, stekkjastaur heldur þá áfram án þessa
að fá minnstan dreitil, því hann er svo stirður, já hrakfallabálkur er hann Stekkjastaur."
Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.
Hann vildi sjúga ærnar,
-þá varð þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
-það gekk nú ekki vel.
Jóhannes úr Kötlum
------------------------------------------------------------------------------------------------
Þrátt fyrir sterk rök fyrir því að blessaðir jólasveinarnir séu ekki til þá held ég ótrauð áfram að trúa pínulítið á þá og kenna börnunum mínum alla skemmtilegu siðina og sögurnar sem fylgja þessum skemmtilegu og skrítnu körlum Þetta er svona hluti af því að ríghalda í barnið í sjálfum sér. Allavega er það svo hjá mér
Heima hjá mér í gærkvöldi voru bara 2 af krökkunum mínum heima, það elsta og yngsta. Sá elsti fór pent í það að reyna að fá að vita hvað hann fengi í skóinn, hann vissi jú núna að það værum við sem að settum í skóinn. Við svöruðum því fljótt og vel að hann yrði að fara þægur að sofa og sjá það svo í fyrramálið hvað það yrði Litla skottið er ekki alveg farin að fatta þetta en ég held að hún verði fljót að átta sig á þessu næstu daga.
Yngsti guttinn minn hafði sýnt pabba sínum stoltur bréf sem að hann var búinn að skrifa sveinka. Í bréfinu var einlæg ósk um hvað hann langaði mest í í skóinn, en það var Sony Ericson gsm sími með korti og pin númeri ! Ofsalega er ég hrædd um að sveinki setji ekki síma í skóinn ......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)