Nýjar myndir ....
4.1.2007 | 23:27
..... í albúminu mínu ATH það er búið að breyta slóðinni á myndaalbúmið mitt. Ég er búin að gefast upp á að setja inn myndir á barnalandstrallið þannig að nú fara allar myndir í albúmið mitt. Endilega skiljið eftir comment í albúminu
Athugasemdir
Hæ hæ, nú þarf ég að fara að koma í heimsókn. Ég var að læra að prjóna myndprjón og vantar svoooo að deila því með þér
Hvernig væri nú að stefna á eitt svona prjóna/kjaftakvöld bráðlega?
Kveðja, Anna Málfríður
Anna Málfríður (IP-tala skráð) 9.1.2007 kl. 08:51
Sæl Anna og gleðilegt ár!
Þessi fallegu börn dafna vel hjá þér og sú litla ætlar greinilega ekki að láta sitt eftir liggja þrátt fyrir erfiða byrjun. Ég er bara að njósna svona hingað og þangað um netið í ársbyrjun, Nenni orðið lítið að vinna.......gæti hugsað mér prjónakjaftakvöld með einhverjum öðrum en kallinum mínum..... hann er ekki nógu góður í prjónaskapnum, annars fínn.
Bestu kveðjur, Dísa systir Önnu M
disa (IP-tala skráð) 9.1.2007 kl. 13:41
Ég er sko alveg til í eitt stykki prjóna/kjaftakvöld
Anna Gísladóttir, 11.1.2007 kl. 04:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.