Meira af jólasveinum og trú á þá sveinana alla
12.12.2008 | 06:15
"Stekkjastaur kom fyrstur, stirðbusalegur karl,
hann fer af stað þrettán dögum fyrir jól, hann reynir að ná
sér í sopa af mjólk sem honum finnst ósköp góð en sú
heimsókn endar þó oftast með ósköpum því kindurnar
verða alveg ærar, stekkjastaur heldur þá áfram án þessa
að fá minnstan dreitil, því hann er svo stirður, já hrakfallabálkur er hann Stekkjastaur."
Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.
Hann vildi sjúga ærnar,
-þá varð þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
-það gekk nú ekki vel.
Jóhannes úr Kötlum
------------------------------------------------------------------------------------------------
Þrátt fyrir sterk rök fyrir því að blessaðir jólasveinarnir séu ekki til þá held ég ótrauð áfram að trúa pínulítið á þá og kenna börnunum mínum alla skemmtilegu siðina og sögurnar sem fylgja þessum skemmtilegu og skrítnu körlum Þetta er svona hluti af því að ríghalda í barnið í sjálfum sér. Allavega er það svo hjá mér
Heima hjá mér í gærkvöldi voru bara 2 af krökkunum mínum heima, það elsta og yngsta. Sá elsti fór pent í það að reyna að fá að vita hvað hann fengi í skóinn, hann vissi jú núna að það værum við sem að settum í skóinn. Við svöruðum því fljótt og vel að hann yrði að fara þægur að sofa og sjá það svo í fyrramálið hvað það yrði Litla skottið er ekki alveg farin að fatta þetta en ég held að hún verði fljót að átta sig á þessu næstu daga.
Yngsti guttinn minn hafði sýnt pabba sínum stoltur bréf sem að hann var búinn að skrifa sveinka. Í bréfinu var einlæg ósk um hvað hann langaði mest í í skóinn, en það var Sony Ericson gsm sími með korti og pin númeri ! Ofsalega er ég hrædd um að sveinki setji ekki síma í skóinn ......
Athugasemdir
Við trúum á Guð þó við höfum aldrei séð hann, hvers vegna þá ekki á jólasveinin ??
Anna Lilja (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 05:39
Jólasveinninn er ljóslifandi til og ég heyri oft í honum!
Langar að senda þér og þínum bestu jólakveðjur með von um gleði og farsæld!
www.zordis.com, 22.12.2008 kl. 19:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.