Fimmtudagur 16. nóvember

Kominn tími á blogg .......  er það ekki ?   Hjá mér gengur allt sinn vanagang, sinna börnum, heimilinu, vinnunni og auðvitað karlinum Grin  Það þarf að sinna honum líka Tounge

Ég var í fríi í vinnunni í dag og var þess í stað heima að gera "aðeins" ...... Þetta aðeins fólst í því að þrífa ísskápinn, bakaraofninn, skipta á rúmum og þvo þvott, ja eða allt svo láta blessaða þvottavélina þvo ....... Ekki má gleyma að ég álpaðist til að fara í Bónus í stórinnkaup Angry  Ég hefði sennilega ekki átt að gera það því ég kom heim 11.000 krónum fátækari og gjörsamlega frosin á höndum og fótum !  Þvílíkur helvítis skítakuldi ......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bara dugnaður í konunni!  Það er sami helv... skítakuldinn hérna fyrir norðan... gæfi mikið fyrir það núna að geta skellt mér til Kanarí til þeirra gömu!

Lena (IP-tala skráð) 17.11.2006 kl. 08:03

2 identicon

Og það á bara eftir að kólna, reyndar á ekki að vera svona hvasst og það er hellings bót í máli. En gaman að lesa að allt gengur vel.

 Kveðja Inda.

Inda Björk (IP-tala skráð) 17.11.2006 kl. 08:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband