Ég er svoooo stolt !
5.10.2006 | 23:22
Í gær fór ég á foreldrafund niður í Rimaskóla, en það er skólinn hans Sigurjóns Stefáns. Í stuttu máli sagt þá kom ég eiginlega svífandi út af þessum fundi. Þetta er fyrsti fundurinn eftir að drengurinn byrjaði í skólanum og hann er alveg að brillera strákurinn Hann stendur sig alveg rosalega vel námslega, er orðinn alveg læs. Hann mætir alltaf á réttum tíma, líka þegar hann fer einn á milli t.d. í dans og íþróttir. Ég verð að hrósa skólanum fyrir alveg frábært starf. Það er rosalega vel hugsað um þennan vel-virka og hressa gutta minn sem þarf mikið aðhald
Athugasemdir
Til hamingju með drenginn, frábært að sjá að hann stendur sig vel í skólanum.
Aðalbjörg
Aðalbjörg Valdimarsdóttir (IP-tala skráð) 6.10.2006 kl. 07:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.