Fyrsti leikskóladagurinn !

CartoonslideÓtrúlega stór dagur !  Litla sponsið mitt hún Halla Katrín Weywadt er byrjuð í leikskólanum sínum Smile  Leikskólinn heitir Bakki og deildin hennar heitir Lundeyjarstofa.   Við mættum klukkan 10 í gærmorgunn og stoppuðum í rúman klukkutíma.  Svona við fyrstu sýn er þetta alveg ágætis leikskóli.  En í raun mjög sérstakur held ég því þetta er einn af fáum ef ekki eini leikskólinn í Reykjavík sem er fullmannaður og búinn að vera það frá upphafi Smile 
Starfsfólkið virkar mjög vel á mig og auðvitað Höllu líka Grin  Allavega var Halla ekki lengi í fanginu á mér þegar við mættum í gær.  Hún renndi sér bara niður á gólf og fór að leika sér eins og hún hefði bara alltaf verið þarna !  Ég hugsa að hún hefði örugglega leyft mér að skreppa fram frá sér hefði ég farið fram á það.  Ég ætla hins vegar að prófa í dag að fá að skilja hana eftir í smá stund og fara þá bara fram á kaffistofu, bara svona til að prófa hvernig hún bregst við að vera skilin eftir þarna. 
Á Lundey (í daglegu tali er deildin kölluð Lundey) er önnur stelpa sem var að koma frá sömu dagmömmu og Halla Katrín.  Sú stelpa skipti mánuði fyrr en Halla.  Ég held að það sé bara betra fyrir Höllu að sjá þarna eitt andlit sem hún þekkir vel.  Í dag eigum við að mæta klukkan hálf tíu en þá nær Halla að vera með í ávaxtatíma sem er fastur liður á hverjum degi klukkan 9:30 Smile
Í gær spurði auðvitað að ýmsu og m.a. hvort það væri spiluð mikið af tónlist fyrir börnin.  Leikskólakennarinn sagði svo vera en það væru samt eiginlega aldrei spiluð "típísk barnalög" fyrir þau.  Þau sæju sjálf um að syngja þau en hins vegar væri spilað mikið af allskonar "fullorðins" tónlist fyrir þau.  T.d. væri róandi tónlist m/Friðriki Karlssyni spiluð í hvíldinni og svo væri mjög fjölbreytt tónlist í boði á öðrum tímum.  Hún sagði að "kallinn" væri samt vinsælastur og útskýrði svo að umræddur tónlistarmaður væri Andra Bocelli.  Þau kæmu oft og bæðu um að þær spiluðu "kallinn" Grin  Æi þessi blessuðu börn eru alveg yndisleg Tounge

Í gær kom Kristján Atli heim úr Hólabergi.  Það fyrsta sem hann tók eftir þegar hann kom heim var Tranformers PS2 leikurinn sem amma Gunna kom með handa honum frá Spáni.  Hann varð eðlilega mjög spenntur fyrir því að prófa leikinn strax en ég var að hans mati frekar leiðinleg og sagði að fyrst yrði hann að læra heima Woundering  Honum fannst ég frekar leiðinleg en hlýddi samt og dreif sig í að læra.  Þess má geta að ég hef sjaldan séð hann jafn fljótan að ljúka heimavinnunni Wink  Í dag fer svo Sigtryggur í Hólaberg og verður þar í 2 daga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rannveig Lena Gísladóttir

Kallinn já!  Finnst þetta sniðugt hjá leikskólanum að vera ekki bara með svona þessi "týpisku barnalög"

Við erum stundum þessar ofurleiðinlegu mömmur sem skipa hitt og þetta fyrir... en getum huggað okkur við það að einhvern tíman þá eiga börnin eftir að vera okkur þakklát.  Ég er í dag amk mjög þakklát foreldrum okkar fyrir hitt og þetta sem mér fannst hin mesta ósanngirni hérna áður fyrr

Rannveig Lena Gísladóttir, 4.9.2007 kl. 22:17

2 Smámynd: Gerða Kristjáns

Já þetta er sniðugt hjá þeim  Til lukku með stóra skrefið hjá litla sponsinu

Gerða Kristjáns, 4.9.2007 kl. 23:42

3 identicon

Bara láta vita að ég fylgist með, það er alltaf gaman að lesa fréttirnar.

erum við að verða voða stórar?

Kveðja. Afi úr sveitinni

Afi úr sveitinni (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 00:30

4 Smámynd: Fjóla Æ.

 Já það er ekki svo langt síðan hún Halla Katrín var pínku pons. Til hamingju með þetta stóra skref og það er greinilegt að þarna fer stúlka sem hefur skoðanir á hlutunum.

Fjóla Æ., 5.9.2007 kl. 08:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband