Hún á afmæli í dag !!! (en ekki á miðvikudaginn ..... )
20.8.2007 | 12:04
Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag.
Hún á afmæli hún Svanhildur !
Hún á afmæli í dag
Í síðustu viku hringdi þessi elska hún Svanhildur frænka mín í mig og spurði mig hvort ég hefði ekki gert dagatalið með myndunum sem hangir uppi á vegg hjá afa og ömmu á Blönduósi. Ég viðurkenndi það strax og vildi fá að vita hvers vegna hún spurði ....... Svanhildur svaraði að bragði: "Sko Anna frænka, það er ein vitleysa í því. Ég á afmæli 20. ágúst en ekki 22. eins og þú skrifaðir í dagatalið." ÚBBS
Hér er svo sönnun fyrir mistökunum .......
Kæra frænka ég biðst innilega afsökunar á þessum mistökum og óska þér líka innilega til hamingju með 14 ára afmælið
Athugasemdir
Æjjji takk fyrir að leiðrétta þetta elsku Anna og takk fyrir kveðjuna
Svanhildur (IP-tala skráð) 20.8.2007 kl. 12:50
Snillingar geta líka gert vitleysur... en þeir bestu geta líka viðurkennt þær...
Rannveig Lena Gísladóttir, 20.8.2007 kl. 14:36
Ohhh takk Lena mín
Ég hlít þá að vera snillingur
Anna Gísladóttir, 20.8.2007 kl. 15:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.