Jamm það er kominn tími á blogg ......

Er kannski kominn tími á að blogga svolítið ?  Mér skilst það á þeim örfáu sem farnir eru að kvarta við mig yfir bloggleysinu hjá mér.
Hjá mér er bara það sama og venjulega í gangi.  Börnin, heimilið, vinnan og auðvitað karlgreyið mitt og svo síðast en ekki síst jólaundirbúningurinn. 
S.l. mánudag var jólaball í Hólabergi.  Þarna var svaka stuð og góðir gestir mættu á staðinn.  Eurobandið kom og söng nokkur lög með krökkunum og svo árituðu þau plaköt og þeir sem vildu gátu látið mynda sig með þeim og það var frekar vinsælt eins og gefur að skilja. 

IMG_1134
 Kristján Atli ásamt þeim Regínu Ósk og Friðriki Ómari

Þarna kíktu líka við þeir Kertasníkir og sjálfur Sveppi.  Villi nagbítur átti reyndar að koma líka en hann forfallaðist.

 

DSC07151

 

 

DSC07152

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Jónsdóttir

Þetta var voða skemmtilegt jólaball

Frábær myndin af Kristjáni og Sveppa saman:)

Kolbrún Jónsdóttir, 5.12.2008 kl. 22:00

2 Smámynd: Berta María Hreinsdóttir

Æðislegar myndir af þeim köppunum.....vildi óska að ég hefði getað komið á jólaballið. En það verður kannski einhvern tímann seinna;)

Knús á línuna**

Berta María Hreinsdóttir, 5.12.2008 kl. 22:54

3 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Regína Ósk er ótrúlega falleg...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 7.12.2008 kl. 20:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband