14. sætið var niðurstaðan ......
25.5.2008 | 05:28
Er það ekki bara ásættanleg niðurstaða í "júróvisíon" ? Það er allavega mín skoðun ..... Englarnir á Dominos voru fengnir til að elda kvöldmatinn fyrir mig og mitt lið og svo var fylgst með frammistöðu okkar fólks í Serbíu. Þar sem að ég var að vinna s.l. nótt, já og er að vinna núna í nótt líka þá er ég frekar sybbin eftir að hafa svindlað á svefninum og vakað yfir júróvision
Þessa helgina er unglingurinn minn hann Kristján Atli hjá pabba sínum og hinir gaurarnir hjá okkur. Þeir voru frekar fyndnir í kvöld þeir bræður Sigtryggur og Sigurjón. Þeir voru eitthvað að fíflast inni í herbergi og stuttu áður en að ég þurfti að fara í vinnuna skaust Sigtryggur fram og henti bréfi á gólfið fyrir framan mig. Þetta var samanbrotið blað sem framan á stóð: "mamma". Ég tók blaðið upp og inni í því stóð: "Mér hefur verið rænt af bófum". Inni í herbergi heyrðist mikið fliss í þeim bræðrum. Ég sýndi Óla blaðið og hann tók það og skrifaði á það: "Bófar, skiliði strákunum eða ég verð reiður !" Síðan var bréfinu skutlað inn í herbergi. Þetta vakti mikla lukku og bréfið gekk svo á milli með ýmsum skemmtilegum skrifum
Athugasemdir
Var bófahasar??
Bestu kveðjur að norðan.
Afi úr sveitinni.. (IP-tala skráð) 25.5.2008 kl. 06:29
Gunnar Helgi Eysteinsson, 25.5.2008 kl. 09:45
Ísland stód sig med prýdi, hefdum alveg mátt vera ofar en hver er svo sem ad kvarta!
www.zordis.com, 25.5.2008 kl. 20:22
14. sætið er flott. Hefði mátt vera nær þar sem þau stóðu sig með sóma. Voru t.d. ekki fáklædd á sviðinu...enda er þetta orðin hálfgerð pabbalísu keppni. Alltaf gott að svindla á svefninum. Kannast aðeins við bófaleikinn....bara skemmtilegt að taka þátt í þessu. Hafið það gott.
Guðmundur Þór Jónsson, 26.5.2008 kl. 20:05
Mér fannst þau standa sig mjög vel ....
Agnes Ólöf Thorarensen, 26.5.2008 kl. 22:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.