Nú er ég pirruð, reið, sár, svekkt ......

23257773Mikið djö.... er þetta búið að vera ömurlegur dagur að mörgu leyti ! 

Í morgun dreif ég mig í að tæma frystikistuna og afhríma hana með það fyrir augum að flytja hana svo út í skúr þegar því væri lokið.  Ég sjænaði kistuskrattann allan að innan sem utan og í hádeginu kom Óli til að hjálpa mér með kistuna út í skúr og svona í gamni þá settum við hana í samband hérna inni svona til að prófa áður en við færum með hana út og viti menn ..... ($&U&%$$/ frystikistan gaf upp öndina ! ÓNÝT !   Ég sem var búin að eyða tíma í að gera hana svo fína Devil 

Í kvöld fór ég svo á fund með konunni sem hefur verið liðveisla fyrir Sigtrygg Einar s.l. vetur.  (Sjá færsluna 27.8. s.l) Hún boðaði okkur foreldra "Reykjavíkurbarnanna" á fund til að kynna okkur niðurstöðu hennar baráttu við að ná samningi við Reykjavíkurborg.  Í stuttu máli sagt var svarið: "Nei takk.  Börn í Reykjavíkurborg hafa úr svo mörgum úrræðum að velja að við höfum ekkert að gera við þína þjónustu" Hvar í andsk.... eru þessi úrræði ???????  DevilDevilDevilDevil

Ég er of reið til að skrifa meira um máli í bili .........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bara kvitta fyrir mig, sjáumst um helgina.

Aðalbjörg Valdimarsdóttir (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 07:39

2 Smámynd: Rannveig Lena Gísladóttir

Skil vel að þú skulir vera reið og pirruð... útaf báðu

Rannveig Lena Gísladóttir, 12.9.2007 kl. 07:56

3 identicon

Vopnast gaddaskóm, allir foreldranir í einu og vaða inn til Villa borgarstjóra (ekki bíða eftir viðtali ) og fótrukka hann hvar þessi úrræði eru .... þið finnið þau ekki.

Mamma.......... (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 11:37

4 Smámynd: Gerða Kristjáns

Já-a mömmu þína í þessu

Gerða Kristjáns, 12.9.2007 kl. 16:31

5 Smámynd: Árný Sesselja

tek undir mömmu orð..... ég skalvera viðbót í támjónum skóm og leyfa þeim að finna fyrir því....

Árný Sesselja, 12.9.2007 kl. 17:58

6 identicon

Anna mín. Gott að helv... frystikistan "dó" hrein.

Fáðu fréttamann hjá Stöð2 með þér og fleiri foreldrum í þessari stöðu í heimsókn til Villa borgarstjóra. Gott að afhenda honum smá plagg með stórum stöfum og undirskriftum og fylgja þessu svo eftir .....

Ég skal með glöðu geði skrifa undir fyrst ! Og gaddaskór... það er fullt af fótboltaskóm með góðum göddum hér. 

Kristín Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 20:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband