Í vinnu á ný eftir ágætt frí
14.6.2008 | 03:39
Nú er sælan á enda í bili og ég komin í vinnuna aftur Æi það er alveg ágætt að koma í vinnuna, hitta allt fólkið "mitt" og fara að hlakka til að fá næsta frí sem er einmitt þegar við förum til Danmerkur
Það sem að ég sagði í gríni í síðustu færslu, að ég ætti bara að senda fyrrverandi og núverandi saman með krakkahópinn, nefndi ég við manninn minn á fimmtudagskvöldið í gríni líka og honum fannst þetta fín hugmynd og í gærmorgunn fóru þeir saman með hópinn og sóttu um vegabréf fyrir þau öll. Þannig að nú er von á 4 vegabréfum inn um lúguna í næstu viku
Sigtryggur minn var til að byrja með ekki alveg á því að fara í þetta. "Ekki taka mynd" sagði hann og var svolítið órólegur yfir þessu. Ég náði í passann hans Óla og sýndi honum og sagði honum jafnframt að hann yrði að eignast "svona bók" með mynd af sér ef hann ætlaði til útlanda í sumar. Það fengi enginn að fara til útlanda sem ætti ekki svona bók. Þetta virkaði og hann fór sáttur í vegabréfaumsókn og stóð sig auðvitað mjög vel
Nú er allt að verða klappað og klárt fyrir Danmerkurferðina. Búið að sækja um vegabréf fyrir krílin og í dag gengum við frá pöntun á gistingu fyrstu nóttina í Danmörku. Við fáum nefnilega ekki húsið fyrr en daginn eftir að við komum út. Við pöntuðum okkur bændagistingu hér:
Lille Grynborg
Athugasemdir
Alltaf gaman að byrja aftur. Hafið það gott.
Guðmundur Þór Jónsson, 15.6.2008 kl. 01:47
Þetta kalla ég samvinnu! Flott hjá ykkur ... í fyrstu misskildi ég og sá Xið og núið saman í danaveldi með hópinn en svo kom ljós!
ÁST OG FRIÐUR
www.zordis.com, 16.6.2008 kl. 12:56
Innlitskvitt og bestu kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 17.6.2008 kl. 15:34
Þið eruð ótrúleg, svei mér þá,. hafið það yndislegt og verið góð hvert við annað.
Sigrún (IP-tala skráð) 20.6.2008 kl. 23:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.