Það er ýmist í ökkla eða eyra
12.6.2008 | 21:24
Blogg númer 2 í dag og stundum ekki neitt í marga marga daga Ég bara mátti til þegar að ég sá eitt af commentunum við síðasta bloggi. Hún Kolla var að spyrja hvar við verðum í Danmörku og svarið við því er þessi mynd:
Kolla mín, við verðum sko þarna í hvíta húsinu með gula þakinu beint fyrir ofan ykkur þarna í Horsens Undir húsinu okkar stendum Hammel. Það er aldrei að vita nema að við kíkjum til ykkar í kaffi ef það er í lagi
Það eru svooo margir búnir að vera að spyrja mig þessarar spurningar þ.e. hvar við verðum í DK og ég bara get ekki munað þessi nöfn og hvað þá nákvæma staðsetningu Dönsk landafræði er langt frá því að vera mín sterkasta hlið sko .... Þetta er svo nærmynd af húsinu "okkar" í DK:
Athugasemdir
Hrikalega naes stadsetning ....
20 manns í bidröd er sko ekkert .... Ég var í röd zar sem ca,250 voru á undan mér og mér féllust hendur, hló í huganum .... settist uppí bíl og lét eins og zetta hafi ekki átt sér stad.
Hrikalega aedislegt sumarfrí framundan hjá zér!
www.zordis.com, 12.6.2008 kl. 22:32
Hæ Anna mín,
Ég var nú einmitt að spá í hvort þið yrðuð i nágrenni við okkur og sé að þið eruð stutt frá:)
Það væri yndislegt ef þið kæmuð til okkar í kaffi... já eða bara kvöldmat. Vertu í sambandi við okkur. Símanúmerin okkar finnur þú á bloggsíðunni minni, bæði íslenska númerið og danska númerið:)
Kolbrún Jónsdóttir, 13.6.2008 kl. 07:17
Móðir mín á hótel í Vandel, rétt fyrir utan Billund.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 15.6.2008 kl. 14:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.