Bloggað í máli, myndum og myndbandi !
26.2.2008 | 22:17
Þegar litla skottið fer í bað á kvöldin nota ég oft tímann til að þrífa vaskaborðið á baðherberginu, laga til í baðskápnum nú eða hreinsa á mér andlitið:
Börnunum mínum fannst þetta lúkk á mömmu sinni frekar fyndið Litla skottan var reyndar svolítið smeik fyrst en svo fannst henni þetta bara fyndið !
Staðan á bænum er þannig núna að miðjumaðurinn (miðsonurinn) er í Hólabergi þessa dagana. Hann fór þangað eftir skóla í dag og kemur heim eftir skóla á fimmtudaginn.
Þetta er krílin sem heima eru:
Litla skottið hún Halla (bakvið húfuna) og unglingurinn Kristján Atli
Að lokum:
Ég heiti Halla og ég er LJÓN !
Athugasemdir
Æjjj snúllan
Ég er ekki hissa á að hún hafi orðið smeyk við þig, hefurðu SÉÐ myndina ?! hahaha
Gerða Kristjáns, 26.2.2008 kl. 22:22
LOL litla snúlla..... ég er sko ekkert hissa á að barnið hafi verið hrætt við þig..... tíhíhíhíhíhí
Árný Sesselja, 27.2.2008 kl. 08:24
Takk fyrir mig,þau eru yndisleg,þessi elsku börn sem við eigumog þú tekur þig bara vel út á myndinni
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 27.2.2008 kl. 08:35
Ég heiti Halla og er Meyja....
Yndislegt.
Halla Rut , 27.2.2008 kl. 08:57
Takk fyrir bloggvináttu.
Halla Rut , 27.2.2008 kl. 15:49
Dúlla og þá er eg ekki að tala um efstu myndina
Gunnar Helgi Eysteinsson, 27.2.2008 kl. 16:12
haha snúllan :)
Ykkur er boðið í afmæliskaffi á föstudagskvöldið ef þið viljið :)
Kveðja Inda
Inda (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 16:26
Hrikalegt krútt og yndislega skemmtilegur aldur sem Halla er á ... Bjútíkvín því er ei að neita fyrirsætan á efstu mynd!
www.zordis.com, 27.2.2008 kl. 18:41
Hæjj,, flott blogg,, ég efast ekkert um að Halla sé ljón í húð og hár .. :)
Svanhildur (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 18:45
Þetta minnir mig á þegar ég setti þarakremið í andlitið á mér einu sinni. Eftir 10 mín var mér farið að svíða og las aftan á pakkann. Þar stóð.
"do not under any curcomstances put on face area!". Þann dag hætti ég að vera kona.
Garún, 27.2.2008 kl. 18:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.