Mamma hvað er síminn hjá Jólasveininum ?
8.12.2007 | 22:12
Þessa spurningu fékk ég frá honum Kristjáni mínum núna í kvöld. Þarna varð ég að vera snögg að hugsa og sagði við strákinn: "Ja, það er nú það. Þú verður bara að kíkja á ja.is......." Þarna hélt ég að ég væri sloppin .... en það var nú aldeilis ekki svoleiðis. Kristján fór í tölvuna og fann símanúmerið hjá jólasveinunum ÖLLUM ! Júbb, þeir eru sko allir í skránni og auðvitað allir með sama símanúmer og fyrir þá sem ekki vita þá er símanúmerið hjá þeim bræðrum 587-1097
"Má ég ekki hringja í jólasveininn og panta hann hingað til okkar og spjalla við hann ?" var næsta spurning. "Það er örugglega svo mikið að gera hjá honum að hann hefur örugglega ekki tíma til að koma bara og spjalla" svaraði ég og þóttist nokkuð góð ....... "Má ég þá ekki bara hringja í hann og segja honum í símann hvað mig langar í jólagjöf ?" spurði Kristján svo og var nú svolítið svekktur á þessum svörum móður sinnar. Og ekki minnkaði svekkelsið við svarið við þessari spurningu: "Neeeee, jólasveinarnir vilja bara fá óskalistana í bréfi. Þeir taka ekki á móti þeim í gegnum síma." Þetta fannst honum greinilega frekar leiðinlegt og hætti að tala um að hringja í jólasveininn.
Í morgun átti ég von á því að pabbi og mamma myndu kíkja til okkar í heimsókn. Ég vissi að þau komu suður í gær til að fara á jólahlaðborð með "Nesbúsliðinu". Ég hringdi í pabba til að vita hvenær þau kæmu en þá var hann á leiðinni til Keflavíkur að sækja mömmu því að í nótt hafði Jökull bróðir komið og sótt mömmu því að hann og Oddný þurftu að fara með litla krílið hann Birni Snæ á sjúkrahús. Birnir er kominn með RS - vírus og er alveg ofsalega veikur litla greyið. Ég frétti svo seinnipartinn í dag að hann væri farinn að fá einhverja stera og væri allur að skána, sem betur fer. RS - vírus er sko ekkert grín fyrir þessi litlu grey, ég er ekki enn búin að gleyma því þegar að hann Sigtryggur fékk þetta þegar hann var um það bil 8 mánaða gamall.
Athugasemdir
Hahahaha þetta vissi ég ekki, þeas með jólasveinana í símaskránni ! Bara snilld
Gerða Kristjáns, 8.12.2007 kl. 22:34
Vildiru ekki bjóða sveinka í heimsókn og spjall??
Rannveig Lena Gísladóttir, 9.12.2007 kl. 14:13
Ég þekki þetta nú í gegnum árin sko, sé hann fyrir mér. En greyið Birnir
Guðmundur Þór Jónsson, 9.12.2007 kl. 16:36
Snær, ég finn til með gutta litla. Hafið það gott.
Guðmundur Þór Jónsson, 9.12.2007 kl. 16:36
Jólasveinarnir eru í símaskránni...
Gunnar Helgi Eysteinsson, 9.12.2007 kl. 18:29
Döhh og ég sem er búin að segja börnunum mínum í mörg ár að símanúmerið hjá jólasveinunum sé trúnaðarmál sem eingöngu mæður fái afhent á fæðingardeildinni.
Fjóla Æ., 9.12.2007 kl. 23:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.