Óréttlæti á háu stigi .....
8.10.2007 | 21:25

Í síðustu viku byrjaði ég á fyrra námskeiðinu, fagnámskeiði I í umönnun. Ég var reyndar búin að afskrifa það að komast að á þessu námskeiði því að þegar að ég sótti um var mér tjáð að báðir hóparnir væru orðnir fullir og ekki séð fram á að þeim yrði fjölgað. Sú varð ekki raunin því að aðsóknin í þetta var þvílík (nýtt met er sagt) að á endanum þegar af stað var farið þá var startað í fjórum hópum. Ég fékk tilkynningu um að ég væri í hóp 2 sem væri kennt í Rafiðnaðarskólanum á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum frá 2. október til 22. nóvember. Ég mætti í fyrsta tímann s.l. þriðjudag full bjartsýni og tilhlökkun en OMG hvað sjokkið var mikið þegar á hólminn var komið. Í hópnum mínum eru 20 manns og þar af aðeins 5 íslendingar


Í dag fékk ég svo upphringingu frá Mími þar sem mér var tjáð að ég mætti færa mig í hóp 1 á morgun og sitja þar námskeiðið með vinkonu minni sem vinnur með mér. Ég stóðst ekki freistinguna og tjáði mig (mjög kurteislega) um hvað mér finnst um þetta fyrirkomulag á námskeiðinu. Svörin sem ég fékk voru svo sem ekki upp á marga fiska ...... en í þeim kom fram að 70 manns sóttu um fagnámskeið I, þar af voru bara 20 íslendingar ! Miðað við hópinn sem ég sagði frá hér að framan þá mundi ég giska á að u.þ.b. 30 manns eru á þessum námskeiðum og fá launahækkun sem tala ekki stakt orð í íslensku. Þetta finnst mér bara argasta óréttlæti !
Ég vil taka það skýrt fram að ég er ekki rasisti og ég hef ekkert á móti útlendingum í vinnu á Íslandi EF þetta fólk bara talar íslensku !
Athugasemdir
Veistu hvað Anna mín ég skil alveg nákvæmlega hvað þú átt við enda búin að vera í sömu sporum og þú!!!! að mínu mati gætu þessi námskeið verið mikið gagnlegri ef að allir íslendingar væru saman í hóp ( og ég tala nú ekki um að þau yrðu styttri líka) því að við að tala fyrst á íslensku og svo ensku, það var allavega ekki alveg að gera sig þegar ég var á þessu í janúar.
Brynhildur (IP-tala skráð) 9.10.2007 kl. 03:18
Ég er alveg sammála þér nafna, það er ekkert réttlæti í þessu!
Anna Málfríður (IP-tala skráð) 9.10.2007 kl. 09:57
Ég er alveg sammála þetta er óréttlæti á háu stigi.
Kristín Katla Árnadóttir, 9.10.2007 kl. 10:04
Skil þessa afstöðu og ég sem er útlendingur í öðru landi lagði allt í að geta tjáð mig og talað á nýrri tungu.
Ef fyrirlestrar og kennsla fer fram á íslensku þá sé ég ekki hvað þetta fólk hefur þarna að gera! Rétt eins hægt að kasta peningunum út um gluggann!¨
www.zordis.com, 11.10.2007 kl. 07:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.